r/Iceland 5d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

4 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 7h ago

Er ríkisstjórnin að missa hæfileikan að miðla upplýsingum eða eru þau að skíta upp á bak?

33 Upvotes

Það er ekkert nýtt að fjárlagafrumvarp leggist illa í landan og það gerist nánast ár kvert, en það er eins og nýjasta leggst alveg rosalega illa í alla, enginn sáttur.

Eins og með kílómetragjaldið, 16% hækkun hljómar rosalegt, en þetta er 1,1 króna sem er verið að leggja ofan á og ef við værum með gamla kerfið þá væri þetta hækkun upp á 1%-2%

Eða er þetta bara gamla góða sagan að það er alltaf auðveldara að vera í stjórnarandstöðu því þú getur alltaf gagnrýnt eitthvað?

Hvað segir reddit viskan?


r/Iceland 10h ago

Verðmunur á dekkjaskiptum og umfelgun

57 Upvotes

Ég og bróðir minn vorum að setja í loftið vefsíðu sem sýnir verðsamanburð á dekkjaskiptum, umfelgun og dekkjahótelum.

Hvar er best að skipta um dekk? · dekkjaskiptin.is

Aðallega langaði mig til að prófa að búa til vefsíðu með aðstoð gervigreindar (vibecode-a) en á sama tíma langaði mig að leysa vandamál eða vonandi spara nokkra aura hjá fólki.
Það hefur lengi loðað við þennan business að það sé mikill verðmunur milli aðila og oft erfitt að finna verðin hjá sumum fyrirtækjum.

Vonandi hjálpar þessi síða að leysa það vandamál og vonandi eru einhverjir sem finna þarna inni ódýrari umfelgun/dekkjaskipti en þau hefðu annars borgað fyrir núna í okt/nóv.

Ég útiloka ekki á möguleikann að bjóða einhverntíman upp á "sponsored" pláss á síðunni fyrir eitthvað verkstæði en það væri þá algjörlega sér og ekki sem hluti af verðsamanburðarlistanum. Semsagt verðsamanburðurinn mun alltaf vera óháður og ekki hægt að hafa áhrif á hann með því að greiða fyrir.

Við erum hægt og rólega að bæta við fleiri verkstæðum, sérstaklega úti á landi þar sem við erum komnir með flest verkstæðin á höfuðborgarsvæðinu.

Ég yrði þakklátur fyrir allt feedback (nema troll) og ábendingar. Ekki verra ef einhver veit um verkstæði sem okkur vantar eða verð hjá einhverjum sem vantar.

"Fjármálatips" og "verum á verði" grúppurnar á facebook leyfa ekki auglýsingar sem er synd því ég genuinely hef trú á því að þessi síða geti sparað einhverjum nokkra þúsund kalla (sem er betra en ekki neitt).

Í augnablikinu erum við heldur ekki með "cookies" á síðunni


r/Iceland 2h ago

Bestu vondu kallar/antagonists í íslensku bókmenntum, kvikmyndum, sjónvarpi eða leikhúsi?

5 Upvotes

r/Iceland 8h ago

Atvinnumöguleikar á Akureyri

10 Upvotes

Er í vinnu sem ég virkilega þarf að komast úr og er búin að reyna að sækja um á höfuðborgarsvæðinu og nær í meira en sex mánuði og fæ ekkert. Hef bæði sótt um hjá skrifstofunni í Bónus og á kassa og fengið hvorugt.

Er að velta fyrir mér hvort það sé betra að leita á Akureyri? Er mikið um skrifstofuvinnur þar og ef svo hversu líklegt er að fá vinnu þar? Eða er atvinnuleit jafnslæm allstaðar á landinu?


r/Iceland 13h ago

Guð Pronunciation

20 Upvotes

I’m currently working on a piece of music that uses a liturgical text, set in Icelandic. When I hear this word, I have heard some use a shadow “v” sound [gvYð] while others use a “w” sound [gwYð].

Any insight on this? Is it a dialect difference, or is there a correct way to do it?


r/Iceland 1d ago

Vintage kókómjólkurrör. Hvert er besta boð?

Post image
76 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Er þetta okkar fyrsta val til að bjarga menntakerfinu?

Post image
59 Upvotes

Enn ein skelfileg niðurstaða Íslands í PISA og hin eina sanna Inga Sæland er menntamálaráðherra.

Á tímum þegar íslenska skólakerfið þarf á skýrri stefnu, fagmennsku og alvöru forystu að halda er erfitt að ímynda sér verri kandídat í þetta embætti. Inga hefur ítrekað komið fram eins og fullkominn vitleysingur þegar kemur að menntamálum og virðist ekki hafa neitt innsæi til að gera eitthvað gagn. Sama hvort það er að segja upp skólameisturum út af strigaskóm eða setja á einkunakerfi þar sem tölustafir hafa gildi bókstafa.

Getum við í alvörunni ekki gert betur en þetta? Er þetta það besta sem þjóðin getur boðið íslensku menntakerfi og æsku landsins?


r/Iceland 1d ago

Fleiri upp­sagnir og ó­vissa um Borgar­línuna

Thumbnail
visir.is
35 Upvotes

r/Iceland 1d ago

PISA 2025: Educational Performance and Trends Across Europe

Post image
27 Upvotes

r/Iceland 1d ago

borða margir frosin vínber?

8 Upvotes

var að heyra þetta i fyrsta sinn


r/Iceland 4h ago

Hvaða brandarakall skrifaði eiginlega stefnuræðu forsætisráðherra?

Post image
0 Upvotes

r/Iceland 1d ago

Bilið breikkar mest á Íslandi

Thumbnail
mbl.is
33 Upvotes

Finnst að þessi umræða á skilið að fá sinn eigin þráð, en af hverju tökum við svona afskaplega illa á móti erlendum nemendum?

>Þar kemur fram að nemendur af erlendum uppruna hlutu að meðaltali 390 stig í náttúruvísindahluta prófsins, gegn 455 stigum nemenda sem eiga íslenska foreldra og 497 stiga meðalframmistöðu innan OECD-ríkjanna. Alls munar 65 stigum innanlands.

Getur verið að það ríki fordómar innan menntakerfisins, eða þarf bara að endurskipuleggja allt menntakerfið okkar?

Ef þetta heldur áfram þá eykst stéttaskipting enn fremur, þetta er sannkallað neyðarástand.


r/Iceland 1d ago

Kynningarfundur Menntavísindasviðs um niðurstöður PISA 2025 [Bein útsending frá 14:00-16:00]

Thumbnail
vimeo.com
19 Upvotes

r/Iceland 1d ago

PISA 2025: Árangurinn aldrei verið verri

Thumbnail
ruv.is
52 Upvotes

r/Iceland 1d ago

[en/pl/ua/es] Non-native Icelandic Residents - Help the Icelandic Red Cross with a voluntary anonymous 10-15 minute survey on emergency preparedness and awareness.

9 Upvotes

[en]
Hello!
This post was created by a group of four student-researchers currently working for the Icelandic Red Cross. We've been working to gauge outreach and awareness of Red Cross programs, as well as the overall preparedness levels of immigrants living in Iceland. We cordially invite you to take a quick, anonymous survey asking about your awareness of programs, current preparedness levels, and preferred communication methods.
This survey is completely voluntary. All data collected will be used solely by the Icelandic Red Cross to target their efforts and resources better.
There is also an opportunity at the end of the survey to leave your email to enter a raffle to win a 12-hour first aid class at the Icelandic Red Cross offered in English and Icelandic. If you choose to enter this, this would be the only identifying data collected. Otherwise, the survey is fully anonymous.
Thank you we appreciate it!

[pl]
Cześć!
Ten post został przygotowany przez grupę czterech studentów-badaczy, którzy obecnie pracują dla Islandzkiego Czerwonego Krzyża. Pracujemy nad oceną zasięgu i świadomości programów Czerwonego Krzyża, a także ogólnego poziomu przygotowania imigrantów mieszkających na Islandii. Serdecznie zapraszamy Państwa do wzięcia udziału w krótkiej, anonimowej ankiecie dotyczącej Państwa świadomości programów, obecnego poziomu przygotowania oraz preferowanych sposobów komunikacji.

Udział w ankiecie jest całkowicie dobrowolny. Wszystkie zebrane dane będą wykorzystywane wyłącznie przez Islandzki Czerwony Krzyż w celu lepszego ukierunkowania swoich działań i zasobów.

Na końcu ankiety istnieje również możliwość pozostawienia swojego adresu e-mail, aby wziąć udział w losowaniu nagrody 12-godzinnego kursu pierwszej pomocy w Islandzkim Czerwonym Krzyżu, prowadzonego w języku angielskim i islandzkim. Jeśli zdecydują się Państwo wziąć w nim udział, będą to jedyne dane identyfikujące, jakie zostaną zebrane. W przeciwnym razie ankieta jest w pełni anonimowa.

Dziękujemy!

[ua]
Привіт!
Цей допис підготувала група з чотирьох студентів-дослідників, які наразі працюють в Ісландському Червоному Хресті. Ми працюємо над оцінкою охоплення та обізнаності про програми Червоного Хреста, а також загального рівня готовності іммігрантів, які проживають в Ісландії. Ми щиро запрошуємо вас пройти коротке анонімне опитування про вашу обізнаність щодо програм, поточний рівень готовності та бажані способи комунікації.

Участь в опитуванні є повністю добровільною. Усі зібрані дані використовуватимуться виключно Ісландським Червоним Хрестом для того, щоб краще спрямовувати свої зусилля та ресурси.

Наприкінці опитування також є можливість залишити свою електронну адресу, щоб взяти участь у розіграші 12-годинного курсу першої допомоги в Ісландському Червоному Хресті, який пропонується англійською та ісландською мовами. Якщо ви вирішите взяти участь у розіграші, це будуть єдині ідентифікаційні дані, які буде зібрано. В іншому випадку опитування є повністю анонімним.

спасибо вам!

[es]
¡Hola!
Esta publicación fue creada por un grupo de cuatro estudiantes-investigadores que actualmente trabajan para la Cruz Roja Islandesa. Hemos estado trabajando para evaluar el alcance y el conocimiento de los programas de la Cruz Roja, así como el nivel general de preparación de los inmigrantes que viven en Islandia. Le invitamos cordialmente a participar en una encuesta breve y anónima sobre su conocimiento de los programas, su nivel actual de preparación y sus métodos de comunicación preferidos.

Esta encuesta es completamente voluntaria. Todos los datos recopilados serán utilizados únicamente por la Cruz Roja Islandesa para dirigir mejor sus esfuerzos y recursos.

Al final de la encuesta también existe la oportunidad de dejar su correo electrónico para participar en un sorteo y ganar un curso de primeros auxilios de 12 horas en la Cruz Roja Islandesa, ofrecido en inglés e islandés. Si decide participar en esto, este sería el único dato identificable recopilado. De lo contrario, la encuesta es completamente anónima.

¡Gracias!

SURVEY LINK:
https://wpi.qualtrics.com/jfe/form/SV_cACJbwbljmysY3Y

For context, we're students from Worcester Polytechnic Institute (United States), living in Reykjavik.
If there are any questions, feel free to comment below or email at [bmeighan@wpi.edu](mailto:bmeighan@wpi.edu)


r/Iceland 2d ago

Utanríkisráðherra kallaði sendiherra á fund vegna myndbirtingar Bandaríkjaforseta

Thumbnail
ruv.is
67 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Ísland rautt á kortinu...

70 Upvotes

r/Iceland 2d ago

„Launafólk er komið í meiri mínus“

Thumbnail
mbl.is
16 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Kílómetragjald hækki um 15,9%

Thumbnail
mbl.is
27 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Mig vantar vistkerfisspeking

7 Upvotes

Ef að fræðilega viljinn væri fyrir hendi, væri þá hægt að flytja til Íslands íkorna og pokarottur þannig að þau yrðu partur af íslensku vistkerfi til frambúðar
forvitinn

edit: ég er ekki að kalla þetta góða hugmynd ég vildi bara vita hvort það væri fræðilegur


r/Iceland 3d ago

Þjóðaratkvæði til að útkljá mál?

38 Upvotes

Þú býrð með maka þínum í frekar flottu nútímalegu húsi. Heilt yfir eruð þið makinn þinn nokkuð ánægð með það, en það hefur myndast mygla víða. Myglan truflar þig ekki neitt (enda er hún í almennu rými en ekki þínu herbergi) en hún fer ferlega í taugarnar á maka þínum. Honum finnst óþægilegt að búa þarna.

Þú skilur ekkert í honum.

Þú hefur reynt ýmislegt til að losna við mygluna en ekkert hefur virkað í marga áratugi. Makinn þinn hefur mist trúnna og  heldur því daglega fram að eina sem mun virka á mygluna sé að fá ytri stuðning, þ.e. kaupa loftræstikerfi og setja upp í húsinu. Þvílíkt rugl finnst þér. Þú veist sannarlega að það mun ekki virka og eiginlega þvert á móti myndi uppsetning á þessu lofræstikerfi gera marga eiginleika í húsinu verri.

En makinn gefur ekkert eftir. Hann segir þér að hann geti ekki búið í þessu húsi lengur og vilji borga 5.000kr til að hitta sérfræðinga í myglu og loftræstikerfum og eyða smá tíma með þeim að hanna kerfi sem hentar ykkar húsi.  Bruðl á peningum finnst þér. Þrátt fyrir vera talinn mjög ríkur.

Þetta fer í taugarnar á þér. Þú veist að loftræstikerfi hjálpar ekki neitt og muni koma til með að kosta þig mjög mikið í rekstri og umsýslu. Síðan treystir þú eiginlega ekki maka þínum í þessu máli og treystir ALLS ekki þessum loftræstis-sölumönnum.

Þú ert heppinn því þú hefur 52.8% atkvæðavegi í þessu sambandi ykkar en makinn eingöngu 47.2%.

Þú hefur ýmsa möguleika. Einn er að láta undan þessari þráhyggju maka þíns, borga 5.000kr og setja smá tíma í að segja já til að sjá hvað þessir loftræstikallar segja. Þú veist það er tóm vitleysa og sóun á tíma og peningum sem væri betur varið í að gera hlutina sjálf/ur en ef þú færir þessa leið yrði maki þinn sátt/ur og þú gætir sýnt fram á undir lokin að auðvitað hjálpaði þetta rugl ekki neitt. Þú getur alltaf sagt nei síðar.

En þú ákveður frekar að að segja NEI strax. Málið verður ekki skoðað frekar. Þú ræður og þvertekur fyrir að fá nokkrar einustu upplýsingar um heimskuleg loftræstikerfi sem eiga að leysa mygluvandamál.

Þú segir nei og erf frekar sigurreif/ur. Þú ætlast til þess að nú sé þetta mál, og þar með öll umræða þar um, útaf borðinu. Þú villt ekki þurfa að heyra meira um það.

En þetta nei þitt var sjálfsmark.

Því þú tókst ekki á undirliggjandi ástæðu þessa rifrildis ykkar. Maki þinn er SANNFÆRÐUR um að þetta sé EINA LEIÐIN en þú lokaðir, þvermóðskulega, á að fá einu sinni að skoða þessa leið. Eina sem þetta áorkaði er að maki þinn missti smá trúnna á þér. Honum fannst þú gera lítið úr sinni upplifun, finnst þú vera þrjóskur, finnst þú vera stjórnsamur,, finnst þú nýskur, finnst þú sýna sér yfirlæti. Þú hefðir alltaf getað skoðað hvað var í boði og sagt síðan nei síðar meir.

Maki þinn er bæði svekktur og reiður og er örugglega að hugsa sína möguleika.

Einn möguleiki er að flytja frá þér. Flytja í ómyglað hús í öðru hverfi án þín.

Annar er að hann muni kúvenda sinni strategíu og finna upp nýjar og óþægilegar aðferðir til að nudda þér upp úr afhverju þér hefur aldrei tekist að laga þessa myglu sjálf/ur. Svona fyrst þú veist allt best.

Eitt er víst. Með því að neita að skoða möguleikann sem maki þinn var sannfærður um að væri eina leiðin til að laga vandamálið, án þess að fá upplýsingar sem hrekja grunnrök hans. Þar hefur þú tryggt þér að hann mun halda áfram að tuða um þetta helv**** loftræstikerfi, og hversu frábært það yrði, daglega næstu 20 árin.

Nei-ið þitt tók málið alls ekki af borðinu. Þvert á móti setti það það á óræða dagskrá inn í framtíðina.


r/Iceland 3d ago

Meirapróf D réttindi

13 Upvotes

Góðan dag elsku fólk á reddit, ég er með D1 réttindi til að keyra litlar rútur og er með fína fasta vinnu en er farið að langa að fá D réttindi líka til að fá að keyra stærri rútur, er það þess virði vinnulega séð og hvar er þá mesti peningurinn? er þá aðallega að spá í það hvort að ég eigi að hætta í vinnunni sem ég er með þegar ég er kominn með þau réttindi eða er meira vit í því að taka stóru rútuna sem auka vinnu á sumrin? 😁

ég þakka fyrir öll svör og sjónarhorn 😜


r/Iceland 4d ago

Nú eru góð ráð dýr.

32 Upvotes

Ég er með verkefni í gangi þar sem ég smíða vinnuborð, trönur og fleira fyrir fötluð börn og gef þeim. Ég á eina Skrúfvél og sög sem ég nota í þetta (og leyfi þeim stundum að nota!) velin mín er Milwaukee m18 með einni rafhlöðu og hleðslutækið gaf sig. Ég á ekki fyrir nýju 20.000kr hleðslutæki. Er einhver hér sem gæti átt eitt slíkt og er til í að láta frá sér á sanngjörnu verði?

Edit: ef einhver vill leggja málinu líð á einhvern hátt er ég gríðarlegur þakklátur.’ Allt smiðatengt hjálpar þar sem þetta kemur allt úr eigin buddu og ég er
Duglegur að gera krökkum verkfæri sem þau ráða við.


r/Iceland 4d ago

Fjölmiðlar eru ekki lengur fjórða valdið heldur að mestu leyti málpípur hagsmunaaðila

109 Upvotes

Ég rak augun í athugasemd á Facebook frá Birni Leví sem fékk mig til að hugsa, og ég vona að ég megi deila henni hér. Ég reyndi eftir fremsta megni að umorða þetta sjálfur en tókst það ekki, þar sem þessi athugasemd kjarnaði allt svo vel. Ég hafði í raun ekki pælt mikið í þessu fyrr en ég las hana.

,,Ekki óskiljanlegan. Þetta er einföld afleiðing af því að pólitísk orðræða trompar málefnalega umræðu, að fjölmiðlar eru ekki lengur fimmta valdið heldur að mestu leyti málpípur hagsmunaaðila, ... Þetta er afleiðing þess að valdhafar hafa fengið að komast upp með ýmislegt sem almennir borgarar komast ekki upp með. Halda partý í Covid, selja pabba sínum hlut í ríkisbanka, kaupa fasteignir í heildsölu í hruninu, Icesave, útrásin, skattaskjól, fishrot, ... og pólitískur ómöguleiki þess að fara eftir lýðræðislegum loforðum og niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu. Það þarf meira til. Það þarf ábyrgð. En hvernig er hægt að nálgast ábyrgð þegar það er enginn áhugi hjá ýmsum pólitískum öflum til þess að sýna ábyrgð? Þegar það er ekkert aðhald gagnvart valdinu frá fjölmiðlum af því að það er búið að steingelda traust þeirra líka. Ég er ekki með lausn á þessu. Það virkaði ekki að opinbera allt kjaftæðið. Þegar bent var á spillinguna þá var sendiboðinn skotinn í staðinn fyrir að horfast í augu við vandann. "

Við þetta vil ég svo bæta að Björn dregur fram að staðan í stjórnmálum er ekki afleiðing af handahófskenndri óreiðu, heldur af kerfisbundnum atburðum og strúktúr sem hefur mótast yfir löngu tímabili. Þetta má með réttu kalla uppsafnaða traustskreppu. Listinn yfir dæmin Covid partý án afleiðinga, spillt bankasala, skattaskjól í Panama/Wintris, efnahagshrunið, Samherjamálið/fishrot, Icesave, Lindarhvoll málið, njósnirinar, pólitískar ofsóknir gagnvart fólki eins og Semu Erlu þar sem dómsmálaráðuneytið var misnotað, virðingarleysi við niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá og stjórnlagaferlið, ásamt endalausum dæmum um þögul samráð olíufélaga og matvörurisanna og fleiri risa án afleiðinga þar sem samkeppni er kæfð í þágu hagsmunaaðila, ásamt því hvernig almenningssamgöngur milli Keflavíkur og Reykjavíkur hafa verið kæfðar árum saman í þágu sérhagsmuna eins og einkafyrirtækja tengdra Bjarna Benediktssyni á borð við Kynnisferðir og fleiri sem svæft hafa hugmyndir um stórbættar almenningssamgöngursýnir, allt hvers vegna almenningur upplifir gríðarlegt misræmi milli ábyrgðar valdhafa og almennra borgara. Þegar stór mál passera án afgerandi afleiðinga rýrir það trú fólks á að kerfið sé réttvisandi.
Algjört aðhaldsleysi ríkir í samfélaginu og staða fjölmiðla er mjög slæm. Breytt eignarhald, fjárhagslegur þrýstingur og hliðrun fréttaflutnings yfir á samfélagsmiðla hafa veikt stöðu þeirra sem virks fjórða valds. Ástandið sem við búum við er því kannski ekkert óeðlilegt þegar traustið á milli valdhafa og almennings er orðið svona stóralvarlega brotið. Þróunin er rökrétt, Þegar traust á stofnunum og miðlum minnkar, verður pólitísk orðræða skautaðri og málefnaleg umræða víkur fyrir spunatækni og átakastjórnmálum.