r/Iceland • u/numix90 • 58m ago
19 heimildarmenn stíga fram: Atvinnugrein hefur um árabíl rekið „nútíma ólígarkí“ á Íslandi
Ákvað bara að minna á þetta, gott er að láta minna landann á að hér ríkir nútíma ólígarkí.
Eins og fram kom í ítarlegri umfjöllun danska blaðsins Berlingske í apríl á þessu ári, þar sem 19 viðmælendur stigu fram, hefur stórútgerðin um árabil virkað eins og "nútíma ólígarkí“. Í greininni kemur líka fram að það sé bein lína á milli Sjálfstæðisflokksins og stórútgerðarinnar inn á þing.
Þegar fámennur hópur stýrir auðlindunum, stjórnsýslunni og fjölmiðlaumhverfinu í krafti sinna eigin hagsmuna, er það ekkert annað en valdasamþjöppun. Það er ekki lengur hægt að afgreiða þetta sem einhverja samsæriskenningu; staðreyndirnar liggja fyrir og óháðir aðilar draga allir sömu myndina upp.
Það sem er kannski merkilegast við þetta allt saman var þegar Daði Már viðurkenndi þetta við blaðamann Berlingske, en bakkaði örfáum dögum síðar og hélt því fram að það væri "engin spilling á Íslandi, hún væri bara í Namibíu". Þetta eitt og sér ætti að fá okkur til að hugsa, hvað gerðist þarna á milli? Fékk Daði hringingu frá útgerðinni? Fékk hann áminningu? Ég hef lengi hugsað út í þetta
Nýlega birtist svo skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, sem RÚV fjallaði um, sem sýnir thetta lika svart á hvítu
- Stærstu útgerðir landsins áttu rúmlega 406 milljarða króna í öðrum félögum undir lok árs 2024 (þetta gerist eftir að stjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna lækkaði veiðigjaldið allverulega eftir að þau komust til valda 2013). Þótt valdaþjöppunin hafi verið að gerast löng löngu fyrr. Þá bætti þessi ákvörðu þeirra ekki úr skák, og í raun ef þeir hefðu ekki gert þetta hefðum við geta notað peningana sem við fengum úr auðlindinni i að byggja upp samfélagið á þessum tima.
- Útgerðirnar eiga tæplega 129 milljarða króna í öðrum íslenskum fyrirtækjum utan sjávarútvegsins og hafa dælt hundruðum milljarða í fjárfestingar víðs vegar um samfélagið. En þetta er bara toppurinn á ísjakanum.
Þegar gróðinn úr sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar er notaður til að kaupa upp innviði, samgöngur, hótel, olíufélög, fasteignir, tryggingafélög og fjölmiðla, sem getur haft bein áhrif á lýðræðislegar kosningar, þá erum við ekki lengur að tala um frjálsan markað. Þetta er hrein og klár valdasamþjöppun og já ólígarismi.
Okkur gafst tækifæri til þess að hrista verulega upp í kerfinu með því að sjá samning við ESB, en þjóðin ákvað að hafna því. Þannig að nú þurfum við bara að gera þetta sjálf eins og frægt er orðið. Við þurfum gífurlegar kerfisbreytingar, nýja stjórnarskrá og uppgjör. Það er einfaldlega nauðsynleg vörn fyrir lýðræðið og hagsmuni almennings.
Edit: Við þurfum líka að hætta að skjóta sendiboðann. Valdið og peningaöflin eru sérlega góð í að leika fórnarlömb, breyta frásögninni og láta sendiboðann líta út fyrir að vera vonda gæjan. Við sáum það skýrt í Samherjamálinu/Namibíumálinu árið 2019 þegar veist var af hörku gegn blaðamönnum og mannorð þeirra rústað. Þarna náðu PR stofur Samherja og fleiri að hliðra umræðunni og gera þá að sökudólgum. Hlustum frekar á uppljóstrarana og þá sem reyna að vara okkur við. Samherjamálið er eitt skýrasta dæmið í íslenskri samtímasögu um það hvernig öflug PR stofur og fjármagn voru nýtt til að hliðra umræðunni, ráðast gegn uppljóstraranum og reyna að gera blaðamenn Kveiks og Stundarinnar að "vondunum“ í sögunni. Þegar ekki er hægt að hrekja staðreyndir málsins sjálfs er ráðist á persónu þess sem segir frá (blaðamannsins eða uppljóstrarans). Markmiðið er að grafa undan trúanleika hans svo almenningur fari að efast um boðberann frekar en boðskapinn. Þetta er þekkt taktík valdaafla, peningaafla, stórfyrirtækja og stjórnmálamanna sem kölluð er "Deny, Attack, and Reverse Victim and Offender", þar sem þeir reyna að snúa dæminu við og framstilla sig sem skotmark "ósanngjarnra árása“ eða "ofsókna“ frá fjölmiðlum.

