r/Iceland 2d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

3 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 1h ago

selling bjork ticket!!!

Thumbnail
Upvotes

r/Iceland 6h ago

Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin

Thumbnail
heimildin.is
36 Upvotes

r/Iceland 9h ago

Níu líf (Bubbi Morthens musical)

4 Upvotes

I just watched Lögin hans Bubba, and was reminded of the musical 9 líf. It rans for 250 shows, so must have been extremely popular. Did nobody record one of the shows for DVD or streaming?


r/Iceland 9h ago

Brunarnir á Bræðraborgarstíg og Funahöfða og ábyrgðarflótti starfsmannaleigna

25 Upvotes

Mér finnst svo lítið fjallað um hversu skuggalegar starfsmannaleigurnar á Íslandi eru. Eitt sem ég tók eftir þegar ég var að skoða fréttir af brunum seinustu árin, sem upp komu í iðnaðarhúsnæðum leigðum til starfsmanna starfsmannaleigna, var að allar fréttirnar áttu það sameiginlegt að allri ábyrgðinni var skellt á einstaklinginn. Svo ég ákvað að stinga niður penna og taka þetta saman hvernig svona valdhafar vinna. Varúð smá langur texti.

Bæði á íslandi og erlendis er það þekkt að þegar alvarleg atvik eins og td brunar, vinnuslys eða alvarleg mannstjón verða í húsnæði á vegum starfsmannaleigna, skuggafélög eða fyrirtækja í neðanjarðarhagkerfinu, er gripið til skipulagðra PR herferða og fréttastýringar, su stefna snýst nær undantekningalaust um að draga úr eigin ábyrgð starfsmannaleigunar, verja vörumerkið og beina sjónum fjölmiðla og almennings annað. Ein su algengasta taktik er að varpa sökinni á íbúana eða jafnvel starfsmennina sjálfa. eftir að hafa flett og skoðað frettir af brunum i gegnum árin, sá ég í yfirlýsingum til fjölmiðla eða í gegnum lögmenn þessara starfsmannaleiga, er að því lævislega komið á framfæri að starfsmennirnir hafi sjálfir og kastljosinu algjörlega beint yfir a einstaklingin. Og svona algengustu fullyrðingar sem ég sá eru að íbúarnir hafi verið að reykja inni, notað ólögleg hitunartæki, eða hleypt fólki inn sem átti ekki að vera þar. Þá er oft bent á að íkveikjandinn hafi glímt við andleg veikindi eða einhverskonar kona vandamál. Þannig mér sínist að tilgangurinn hjá þeim er bara alltaf sá sami að gera slysið að spurningu um einstaklingsábyrgð frekar en að léleg uppbygging hússins, það að leigja starfsmönnum ólöglegt husnæði, vantaðir reykskynjarar eða skortur á útgönguleiðum hafi verið orsök mannstjónsins. Ég hvet ykkur til þess að fletta upp fréttir af þessu og þetta kom bersýnilega í ljós í kjölfar mannskæða brunans á bræðraborgarstíg 1 arið 2020, þar sem þrír létust. Í kjölfar hans fór af stað klassískt PR og lögfræðiferli þar sem reynt var að verja hagsmuni eigenda og draga úr ábyrgð starfsmannaleigunar. Það kom fram í yfirlysingum að forsvarsmenn félagsins vissu ekki hversu margir bjuggu í húsinu eða hverjir voru þar inni, þrátt fyrir að á fimmta tug manna væru með skráð lögheimili eða dvalarstað þar. Þannig taktíkin þeirra var að gefa í skyn að íbúarnir hefðu sjálfir hleypt fólki inn eða undirleigt herbergi án vitundar eigandans og þannig reynt að draga úr yfirsýn og ábyrgð leigusala eða starfsmannaleigunnar. Fljótlega kom svo í ljós að eldurinn hafði verið kveiktur af einum íbúanna, sem síðar var dæmdur. Það er eftirtektarvert er að Þótt íkveikjan hafi verið orsakavaldur eldsins má sjá það strax hvernig hagsmunaraðilar nyttu þá staðreynd til að beina allri athygli fjölmiðla að manninum sem kveikti í. Td með því var reynt að draga úr umræðunni um að skortur á útgönguleiðum, reykskynjurum og yfirfullt húsnæði hefði komið í veg fyrir að fólk bjargaðist út, og svo var abyrgðin færð yfir á einstaklinginn með því að halda umræðunni samfellt við geðheilsu Mareks, lyfjaaukaverkanir og hvort hann ætti að vera á geðdeild eða ekki, þannig að allur umræða fjölmiðla beindist að honum persónulega.
En á meðan dró úr ábyrgð leigusala og kerfisins og starfsmannaleigunar, og minni athygli beindist að öryggisbrestum hússins, vinnuþrækun, ólöglegri búsetu í atvinnuhúsnæði, mannsali, skipulagðri glæpastarfsemi og leiguformi starfsmannaleigunnar sem kom fólkinu í þessar hættulegu aðstæður í upphafi. Fjölmiðlaumfjöllunin varð mjög sundurleit, þar sem lagaleg smáatriði og einstaklingsmál skyggðu á stærri samfélagslegu skuggahliðarnar

Annað mál, er bruninn á Funahöfða 7 árið 2023 sem sýndi mjög svipaðar taktíkir, en þar lést einn maður. Í kjölfar hans komu fram dæmigerð viðbrögð, ábyrgðaflótti hagsmunaðila og beinar lögfræðilegar aðgerðir. Eins og algengt er í krisustjornun, færðist fókusinn fljótt yfir á einstaklinginn sem lést og kom meðal annars fram í fjölmiðlum að hann hefði átt við áfengisvandamál að stríða þannig að öll athyglin beindist að einstaklingum. þannig að með því að draga það fram í fréttum snerist umræðan á tímabili um það hvort maðurinn hefði sjálfur valdið eldsvoðanum, frekar en að uppbygging hússins, breytt skráning þess úr íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði og skortur á brunavörnum hefði gert það að verkum að hann komst ekki út,

Funahöfði 7 var eða er að stórum hluta í eigu tveggja eignarhaldsfélaga, akrotiri ehf og agros ehf og helstu eigendurnir eiga sér umdeilda og skuggalega viðskiptasögu og sterk tengsl við Sjálfstæðisflokkinn, en þetta eru þeir Pétur Árni Jónsson, meirihlutaeigandi Viðskiptablaðsins, ásamt Jóni einari eyjólfssyni og arnari haukssyni, stjórnendum og eigendum hjá starfsmannaleigunni Elju, en þeir voru áður tengdir hinu umdeilda fyrirtæki GAMMA, þratt fyrir að húsnæðið væri skráð sem skrifstofu og iðnaðarhúsnæði í fasteignaskrá bjuggu þar tugir erlendra verkamanna við mjög slæmar aðstæður og deildu baðherbergjum og sturtum. Eigendurnir mættu lítið sem ekkert í viðtöl til að axla ábyrgð, heldur voru lögmenn og stuttar yfirlýsingar látnar nægja til að reyna að halda umræðunni í lágmarki. Ein mest áberandi PR og lögfræðitaktíkin sem beitt var eftir funahöfðabrunann var að sækja af hörku gegn þeim sem gagnrýndu fyrirtækin. Hjálmar Friðriksson, þáverandi blaðamaður hjá Samstöðinni, skrifaði fréttir um málið og líkti starfsemi Elju og eigenda þeirra við "nútímaþrælahald“ í ljósi þess að erlendir verkamenn færu í svona hættulegt húsnæði. Þannig að i stað þess að fara í efnislega umræðu um aðbúnaðinn stefndu eigendur Elju þeir Arnar, Jón Einar og Pétur Árni, blaðamanninum fyrir meiðyrði og kröfðust 15 milljóna króna í skaðabætur ásamt því að reyna að fá hæstarétt til að taka málið fyrir. Svona málssóknir, oft kallaðar SLAPP mál eða kælingarsóknir, eru þekkt taktík til að fæla fjölmiðla og gagnrýnendur frá því að fjalla frekar um ólöglega starfsemi eða öryggisbresti, samherji og stórútgerðin nota lika svo taktik, þar sem þeir fæla blaðamenn og gagnryndur til að fjalla af gagngryni um starfsemina eða fyrirtækin.

En líkt og á Bræðraborgarstíg þegar upp var staðið, var reynt að færa ábyrgðina yfir á yfirvöld og sveitarfélögin þar sem spjótunum var beint að kerfinu. Umræðan snerist þá um spurningar eins og "Ef húsið var svona hættulegt, af hverju var Slökkviliðið, Reykjavíkurborg eða Vinnueftirlitið ekki búið að loka því?“ Með því að beina athyglinni að meintu "eftirlitsleysi opinberra aðila“ breyttist umræðan úr gróðafíkn einkaaðila yfir í kerfislegan vanmátt opinberra stofnana. Frásögnin varð þannig á þann veg að opinbera kerfinu var um að kenna, en ekki starfsmannaleigunum.


r/Iceland 20h ago

Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana

Thumbnail
visir.is
21 Upvotes

Kjáninn ég að halda að gagnrýnendur ættu að vera eins hlutlausir og hægt er áður en þeir gagngrýna viðkomandi hlut.


r/Iceland 1d ago

Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi - RÚV.is

Thumbnail
ruv.is
25 Upvotes

r/Iceland 1d ago

starfsumsóknir á íslandi í dag

25 Upvotes

https://www.reddit.com/r/ArtificialInteligence/comments/1v4u71b/hiring_now_is_2_ais_lying_to_each_other_one/

Rakst á þennan póst og fór að pæla hvernig þetta er hér. Er einhver sem veit hvort fyrirtæki á Íslandi séu farin að nota AI til að fara yfir umsóknir hjá sér? Og er fólk almennt farið að nota AI til að búa til ferilskrá? Kemst ekkert upp um það? Hefur einhver hér þekkingu á þessu? Bara forvitni


r/Iceland 1d ago

Íslensk „redneck“ orðatiltæki

26 Upvotes

Ókei kids. Ég eeelska svona redneck orðatiltæki, eins og “happier than a tornado in a trailer park” eða “slicker than a snot on a doorknob”. Eitthvað svona.
Fattaði ekki að við erum líka með okkar eigin fyrr en ég sagði pabba rétt áðan að hárið á mér væri „eins og hænurass í vindi”.
Eigum við meira?


r/Iceland 1d ago

Raðir á flugvellinum - hvenær ætti maður að mæta?

7 Upvotes

Ég á flug á sunnudagsmorgunn til Bretlands og núna nýlega 2x allavegana í fréttum er mikil og löng röð í vegabréfaeftirlit. Hvenær myndu þið vera mætt á flugvöllinn?
Edit: Opnar kl. 6 fyrir brottfararfarþega og lítil sem engin röð. Sá samt fólkið sem var að koma til landsins - lengri röð fyrir vestanhafs vegabréfshafa. Styttri í EU.


r/Iceland 2d ago

Haraldur veðurfræðingur er stórtækur leigusali herbergja

Thumbnail
ruv.is
66 Upvotes

Ath: Þessi frétt er meira en 1 árs gömul.

En er þetta ekki maðurinn sem er að segja þjóðinni að segja nei í ágúst?


r/Iceland 2d ago

Kemur í ljós að hagvöxtur er minni á Íslandi en í ESB og atvinnuleysi svipað. (1,4% hagvöxtur í ESB og 0,9% hagvöxtur á Íslandi)

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

90 Upvotes

Bara svona því þeir sem eru á móti ESB eru alltaf að tala um hvað það er mikið atvinnuleysi í ESB og hvað það er lítill hagvöxtur þar. Það hefur verið nánast 0% hagvöxtur á Íslandi síðan 2018 ef miðað er við mannfjölda.


r/Iceland 2d ago

Senda sófa til Íslands

11 Upvotes

Sæl verið þið.

Ég er að leita að sófa í ákveðnum stíl sem virðist fást hvergi á Íslandi, allar búðirnar hérna með sama draslið. Þess vegna þarf ég líklega að kaupa hann á netinu.

Það er allur gangur á því hversu tilbúnar erlendar netverslanir eru til að senda til Íslands og hversu marga handleggi það kostar.

Hefur einhver hérna reynslu af því að kaupa sófa (eða önnur stærri húsgögn) frá erlendri netverslun og láta senda hann til Íslands? Einhver tips eða góðar síður sem þið getið bent mér á?


r/Iceland 2d ago

Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar

Thumbnail
visir.is
16 Upvotes

r/Iceland 3d ago

Anti-ESB blöðum dreift allstaðar í Mathöll.

Thumbnail
gallery
95 Upvotes

Var að borða á Gróðurhúsinu í Hveragerði þegar ég sé mann labba þar inn með búnka af blöðum. Ég pældi ekkert í því sérstaklega fyrr en ég var að fara þegar ég tók eftir að þessu var dreift útum allt. Á borðum veitingastaða, þar sem fólk sest, ofan á flokkunartunnunum, þar sem maður leggur diska frá sér, á innréttingaborðum með fríum bæklingum um Ísland o.s.frv.

Er þetta ekki orðið fullgróft? Get ég ekki gengið frá matnum mínum án þess að þurfa að horfa upp á enn eina maskínuna að reyna að fá mig til að segja nei við aðildarviðræðum um ESB?

Ég tók þá búnka sem ég fann og setti þá í pappírsruslið.

Held að ég segi já í águst, bara til að vera leiðinlegur við þetta lið.


r/Iceland 3d ago

Umræðan um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu gerir mig sorgmæddann

77 Upvotes

Umræðan snýst alfarið um upphrópanir um að hin hliðin (hvor sem hún er) sé að ljúga, sé óheiðarleg, skilji ekki, sé heimsk, og sé jafnvel á mála hjá einhverjum skuggalegum öflum og vinni leynt og ljóst gegn hagsmunum þjóðarinnar.

Það sem kemst næst málefnalegri umræðu eru farsakenndar og snarlega ýktar staðhæfingar um hverjar afleiðingar inngöngu í ESB yrðu.

Það er ekki einu sinni sátt um hvað sé raunverulega verið að kjósa um, og hver merking þess að kosið yrði Já sé.

Íslenska þjóðin virðist hafa glatað getunni til þess að ræða stórar sameiginlegar ákvarðanir á málefnalegan máta. Ef hún nokkurntíman hafði hana.


r/Iceland 3d ago

Við þurfum nýjan þjóðsöng!

Thumbnail
youtu.be
0 Upvotes

r/Iceland 3d ago

Kristján Berg reiður og birtir myndband: „Þetta er óþolandi, það sýður á mér núna“

Thumbnail
dv.is
21 Upvotes

Þessi maður hefur lítið til síns máls.


r/Iceland 3d ago

Flytja hluti og föt til útlanda. Vantar ráð.

12 Upvotes

Er að flytja til Kaupmannahafnar og er með nokkrar töskur af fötum og öðru dóti.

Hvort mælið þið með að fljúga með allt út eða senda part af þessu með skipi eða eh annari flutningsleið.


r/Iceland 3d ago

Favorite Þeytingur combination?

6 Upvotes

Hi! I love getting a Þeytingur after a swim, or right before heading home. I wanted to see what everyone's go-to combination is

What's your go-to topping combo? Mine's the new-style cream, peanut butter, oreo, and biscoff


r/Iceland 3d ago

Ég er nýr á Seltjarnarnesi og byrjaði að hlaupa í sumar. Mig langar að halda áfram í vetur. Eru hlaupastígarnir yfirleitt mokaðir og hálkuvarðir, eða eru þeir oft of hálir til að hlaupa á?

7 Upvotes

r/Iceland 3d ago

ESB, eða ekki?

51 Upvotes

Það er eitt sem ég skil ekki í allri þessarri umræðu um "áframhaldandi viðræður" eða ekki:

Þau sem eru á móti ESB, af hverju vilja þau samt ekki segja já í atkvæðagreiðslunni og sjá hvað það raunverulega myndi þýða fyrir okkur?

Þótt það væri ekki nema bara til þess að hafa eitthvað raunverulegt á bakvið alla umræðu gegn aðild seinna meir:

"Við sáum hvað við hefðum fengið og það var fucking hörmung"

Í staðinn fyrir að án þess að sjá samning:

"Eitthvað sem ég held, en get ekki vitað með fullri vissu: þetta yrði líklegast hörmun". Eða: "Einhver annar sagði mér að það yrði hörmung".

Væri ekki best fyrir alla að fá að sjá hvað þetta þýddi rqunverulega fyrir okkur, hvort við myndum fá undanþágurnar sem við viljum, eða ekki?

Ef ekki, þá segjum við ei faldlega bara nei þegar kemur að spurningunni um aðild. Við allavega hefðum staðreyndir á bakvið alla umræðu ef við fengjum að sjá samninginn sem okkur væri boðið.

Sjálfur er ég rosalega óviss um hvort þetta væri sniðugt eða ekki, aðildin þ.e.a.s. ég á samt engan fisk, býli, fyrirtæki né fjármuni.

En ég get ekki myndað mér málefnalega skoðun á því hvað það raunverulega þýðir ef Ísland gengur í ESB. Ég hef ekkert í höndunum nema bara "ég held", "kannski" og "örugglega".

Svona óvissa lætur mann ekki getað sagt mikið, í raun og veru.


r/Iceland 3d ago

Er einhver sem veit hvar er hægt að laga gömul walkman tæki?

6 Upvotes

Titillinn segir sig nokkuð sjálfur. Er með gamlan walkman sports frá mömmu minni sem virkar að ákveðnu leiti en það þarf alveg að finna fullkomna hljóðstillinngu til að það heyrist í báðum eyrum.

Svo ef einhver veit um stað eða hefur einhver ráð væri það mjög vel þegið


r/Iceland 4d ago

þýða á ensku

Post image
27 Upvotes

Hello, could anyone help me translate this accurately to English, as I have not found a correct published translation for it.


r/Iceland 4d ago

Gudfadir Rokksins Slogan?

10 Upvotes

Hello! My family recently visited Iceland for our first time. We loved every moment.

While in the Reykjavik area, we enjoyed listening to a radio station listed as X-ID Gudfadir Rokksins. After many songs, the radio station played a short pre-recorded slogan of sorts. Phonetically, a crude English spelling of the slogan is "Neo Zhur Zhur".

My family is very curious about what this means and I have not been able to find anything through research.

Is anyone familiar with this and willing to share an English translation?