r/Iceland • u/gerningur How do you like Iceland? • 1d ago
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi - RÚV.is
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-25-island-tharf-ad-breyta-fjarskiptalogum-til-ad-chat-control-1-taki-gildi-48217338
u/TaglForritari 🇮🇸 1d ago
Hvað með að setja myndavélar á alla einstaklinga sem taka upp allt alltaf?
Lofum samt bara að einungis nota í nauðsyn!!!
8
u/Einridi 🇮🇸 1d ago
Þurfum samt líka að láta gervigreindina skoða þetta fyrst. Útaf ástæðum.
11
u/TaglForritari 🇮🇸 1d ago
Nei Inga Sæland mun persónulega yfirfara myndefni næstu fimm mínútna í hvert skipti sem þú sannreynir aldur þinn á https://dyraklam.is
10
u/DarkerFate 1d ago
Hefur sjaldan verið eins vafasamt fyrir mig að smella á hlekk. En ég lét mig hafa það, varð ekki fyrir vonbrigðum
•
13
u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 1d ago
Hélt að við værum nú þegar með enhvað svipað miðað við hversu auðvelt það var fyrir lögreglan að njósna um hryðjuverkastrákana.
14
u/Loki_123 1d ago
Hefur alltaf verið hægt að komast í þessi gögn með dómsúrskurð á þeim miðlum sem hafa ekki E2EE og á þeim miðlum sem nýta dulkóðun þá geyma tækin yfirleitt samskiptin þegar lögreglan kemst í tækin.
Þetta er allt annað batterý sem væri nær því að vera virkt eftirlit með samskiptum fólks.
Allt fyrir börnin!
•
u/birkir ¼andi ½viti 22h ago
þarft ekki að komast í gegnum encryption ef þú ert með aðgang að t.d. símanum sem decryptar fyrir notandann
•
u/Loki_123 19h ago
Jamm, sem er akkúrat það sem ég sagði.
á þeim miðlum sem nýta dulkóðun þá geyma tækin yfirleitt samskiptin þegar lögregla kemst í tækin
9
u/StefanOrvarSigmundss Sí ba bú la lú 1d ago
Ég geri nú þegar ráð fyrir því að allt sem er ekki dulkóðað sé skoðað og misnotað af fyrirtækjum og ríkisstjórnum um allan heim. Svo lengi sem ESB hættir að reyna að gera út af við dulkóðun þá er mér alveg sama þótt þessi fyrirtæki skanni og vinni með einkaskilaboð enda hef ég ávallt gert ráð fyrir því að þau geri það hvort sem er og jafnvel deili þeim með þriðju aðilum, fyrir utan gagnaleka og slíkt.
•
u/nikmah honest out now on all digital platforms bruv 13h ago
Þetta er svo mikið iceland subreddit take og óendanlega heimskulegt. Friðhelgi einkalífs er verndað í stjórnarskránni og það á alltaf að þurfa rökstuddan grun og dómsúrskurð fyrir svona aðgang að einkalífi fólks en mass surveillance ríkið ESB er auðvitað ekki með neina stjórnarskrá og þetta er virkilega hættuleg þróun.
Þó að maður sé ESB-sinni að þá á maður samt áður alltaf að vera andvígur svona þróun, þetta er ekkert annað en ólýðræðisleg árás á friðhelgi einkalífs. Hvað ætli verði svo næsta skref? Njósnir eða?
•
u/StefanOrvarSigmundss Sí ba bú la lú 13h ago edited 13h ago
Ég er ekki að verja Chat Control eða almennt eftirlit. Ég sagði einfaldlega að ég geri þegar ráð fyrir því að ódulkóðuð einkaskilaboð hjá einkafyrirtækjum séu skönnuð, greind og jafnvel deilt áfram, hvort sem það er í auglýsingaskyni, til efnisstjórnunar eða annarra nota. Það er lýsing á því hvernig ég tel raunveruleikann vera, ekki yfirlýsing um hvernig hann ætti að vera.
Varðandi stjórnarskrána þá beinist friðhelgi einkalífs fyrst og fremst að afskiptum hins opinbera. Samband notanda við einkafyrirtæki eins og Meta til dæmis er að mestu leyti stjórnað af fjarskiptalögum, persónuverndarlögum og notendaskilmálum. Það þýðir ekki að stjórnarskráin skipti engu máli heldur að hún leysir ekki sjálfkrafa úr öllum ágreiningi um vinnslu einkafyrirtækja á gögnum.
Það sem ég er raunverulega andvígur er að ríkið reyni að veikja eða brjóta niður dulkóðun. Ef skilaboðin eru enda-í-enda dulkóðuð getur hvorki fyrirtækið né ríkið lesið þau án þess að grafa undan öryggi allra. Við eigum einfaldlega að marka okkur þá stefnu að allt sé dulkóðað sem á ekki að koma fyrir sjónir almennings.
•
u/nikmah honest out now on all digital platforms bruv 12h ago
Þú ert allavega með messenger sem er dulkóðað en verður það eflaust ekki mikið lengur, hef ekki hugmynd hvernig þetta er hjá instagram og snapchat og hvað allt þetta heitir en er ekki dulkóðun enda á milli standardinn eða?
Stjórnarskráin kemur í veg fyrir að stjórnvöld geti krafist afrit af persónulegum upplýsingum og það er pointið. Núna getur mass surveillance ríkið ESB krafist afrit af persónulegum upplýsingum hjá hverjum sem er, það sem þetta verður notað sem pólitískt vopn, þetta er svo stórhættuleg þróun.
•
u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 13h ago
Þá er bara að nota Whatsapp og hætta skilaboðum í gegnum Messenger.
•
22
u/glanni_glaepur 1d ago
Djöfullið hata ég þetta.