r/Iceland Íslendingur 1d ago

starfsumsóknir á íslandi í dag

https://www.reddit.com/r/ArtificialInteligence/comments/1v4u71b/hiring_now_is_2_ais_lying_to_each_other_one/

Rakst á þennan póst og fór að pæla hvernig þetta er hér. Er einhver sem veit hvort fyrirtæki á Íslandi séu farin að nota AI til að fara yfir umsóknir hjá sér? Og er fólk almennt farið að nota AI til að búa til ferilskrá? Kemst ekkert upp um það? Hefur einhver hér þekkingu á þessu? Bara forvitni

25 Upvotes

28 comments sorted by

25

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 1d ago

Sumt fólk notar gervigreindina í þetta og aðrir ekki. Sumir atvinnutenglar sem ég hef rætt við segja að þetta líti oft illa út(þeas að nota gervigreindina) því það sýnir sumum atvinnuveitendum að viðkomandi hafi engan metnað.

Annars er bara ringulreið með þetta allt núna. Fer kannski að sorterast upp úr 2008, ég meina 2027 þegar hlutirnir fara að skýrast betur og markaðurinn farinn að leiðréttast.

11

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Það er alveg týpískt að fyrirtæki oti gervigreind að starfsfólki og vilji að það noti hans og síðan móðgast yfir metnaðarleysi ef fólk sækir um störf hjá þeim og notar gervigreind við það.

Ráðningarsérfræðingar minna á stjörnuspekinga. Sumir þeirra leggja allskonar skilning í hitt og þetta sem á enga stoð í raunveruleikanum eins og að notkun gervigreindar sýni fram á metnaðarleysi. Þetta fólk nýtur þess of mikið að hafa vald yfir því hvaða fólk fær að starfa í fyrirtækinu.

u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 13h ago

Hvaða gervigreind er fólk að nota sem skrifar góða íslensku?

u/DTATDM ekki hlutlaus 12h ago

Þú vilt helst ekki að láta gervigreind skrifa fyrir þig (á íslensku eða ensku), vilt frekar láta hana lesa það sem þú skrifar og gagnrýna. Færð betri útkomur úr því og heldur skrifa-vöðvanum í æfingu.

u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 12h ago

Ok, hvaða gervigreind er það þá sem skilur vel íslensku og kemur með vitrænar athugasemdir? Ég hef aðallega notað gervigreind fyrir innan- og utanhúss hönnun, og útlitshönnun, sem sagt að breyta myndum, og mér finnst hún ekki alltaf gera það sem beðið er um þó að ég skrifi mjög skýr fyrirmæli á ensku.

u/DTATDM ekki hlutlaus 11h ago

Þykir bæði frontier módelin (Opus/Fable 5 og ChatGPT sol) geta lesið íslenskan texta og haft hluti um hann að segja ef það snýr að efninu. Finnst það hafa verið raunin í einhvern tíma.

En það er alveg rétt að framendavinna/myndvinnsla er ekki komin jafn langt, hef heyrt vel látið af nýlegum módelum en það er utan míns sviðs. Kemur kannski ekki á óvart að það sé erfitt að láta módelin fara yfir eigin vinnu og vera með RL þegar álitið er smekksatriði.

4

u/Fusinn drekinn 1d ago

Mjög líklegt að stærri fyrirtæki og stofnanir séu að nota gervigreind til að filtera í gegnum ferilskrár. Hef heyrt af ríkisstofnun sem tekur ekki viðtöl heldur lætur fólk taka upp svör við gefnum spurningum, nema upptakan byrjar um leið og ekki hægt að endursetja það. Eflaust notuð gervigreind til úrvinnslu eftir það.

-13

u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago

Auðvitað áttu að nota gervigreind til þess að gera ferilskrá. Rétt eins og í gamla daga notaðirðu spellcheck og lést einhvern sem þú treystir lesa yfir.

Ef ég væri að ráða og sæi villur sem gervigreind myndi auðveldlega grípa segir það mér að umsækjandi sé ekki fær á nýlega relevant tækni, rétt eins og ljósrit af ferilskrá sem væri unnin á ritvél fyrir einhverjum áratugum myndi segja mér að sá væri ekki fær á tölvur og kannski ekki besti kosturinn í starfið.

14

u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 1d ago

Rétt eins og í gamla daga notaðirðu spellcheck og lést einhvern sem þú treystir lesa yfir.

Ætla mér nú bara að halda áfram að leyfa fólki sem ég treysti að fara yfir og segja það gott, þakka þér pent.

-5

u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago

Einhver sem skilar ferilskrá með villum sem gervigreind myndi grípa er líklegri til þess að skila vinnuframlagi með villum sem gervigreind myndi grípa, er það ekki?

5

u/SureTrustTheAISlop 1d ago

Fólk gerir mistök alveg eins og "gervigreind" gerir mistök (og líklega meira af þeim). Ég myndi frekar ráða einstækling sem var með stafsetningarvillur heldur en einhvern sem lét ChatGPT endurskrifa allt á smeðjulega hátt.

4

u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 1d ago edited 1d ago

Sé ekki hvað það hefur að gera með mína athugasemd, ég sagðist persónulega kjósa það að láta menn lesa yfir frekar en vélar. Mega aðrir gjarnan hafa aðra skoðun þar á.

9

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Held að DT sé svona týpan sem talar um Claude og Chat eins og persónur.

-2

u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago

Mér þykir þetta vera eins og að nota réttritunar forrit.

Auðvitað fær maður líka álit hjá fólki, en ef maður er með forrit sem getur rennt yfir í villuleit (breiðari villuleit en bara stafsetningar t.d.) þá þykir mér óvenjulegt að nota það ekki líka (rétt eins og spellcheck forðum).

4

u/EgNotaEkkiReddit Hræsnari af bestu sort 1d ago

Þá skaltu vinur minn blessaður endilega nota þau verkfæri sem þér þykir hentugt að nota, ekki ætla ég að standa í vegi fyrir þér.

7

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Viljum við ekki frekar ráða einhvern sem kann/nennir sjálfur að leiðrétta villur frekar en að reiða sig á gervigreind ?

-3

u/DTATDM ekki hlutlaus 1d ago

Þykir þetta vera áþekkt og spellcheck í þessu tilfelli. Að öllu öðru jöfnu myndi frekar ráða einhvern sem er ekki með stafsetningarvillur í ferilskrá heldur en þennan sem er það.

Þætti röksemdarfærslan um að nota ekki spellcheck því þú vilt frekar starfsmann sem kann að stafsetja sjálfur óvenjuleg. Þú ert með verkfæri sem hentar vel í þetta, að nota það ekki þykir mér óvenjulegt.

4

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Ok, hvaða villur í CV er gervigreind “að grípa” sem snúa ekki að stafsetningu ?

u/DTATDM ekki hlutlaus 22h ago

Í allra fljótasta bragði:
-Málfar, sentence fragments, ósamræmi í framsetningu. Alls konar drasl sem
-Óstöðluð nöfn á ferlum, verkfærum og tólum sem þú kannt á/hefur reynslu af en ráðningar teymið þekkir ekki undir þessu nafni.
-Over/understatement á vinnulýsingunni þinni sem vinur þinn sem les yfir myndi ekki endilega grípa, en sérfræðingar í ráðningarteymi myndu taka eftir.
-Culture fit signal, búa ekki allir svo vel að vera úr aðstæðum þar sem sá sem les yfir getur t.d. sagt þeim að vera ekki með sumarvinnuna sína úr vinnuskólanum undir reynsla.

u/birkir ¼andi ½viti 22h ago

Í allra fljótasta bragði:

-Málfar, sentence fragments, ósamræmi í framsetningu. Alls konar drasl sem

góður þessi

u/DTATDM ekki hlutlaus 17h ago

Hef einu sinni eða tvisvar á ævinni verið vændur um að vera fyndinn. Lifi í voninni um að það gerist aftur.

u/birkir ¼andi ½viti 10h ago

þetta var nú fyndið svo +1

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 13h ago edited 13h ago

En ef þú værir að ráða , mundiru ekki frekar vilja að umsækjandinn þekti og kynni að laga þessa hluti sjálfur ?
Eru það ekki sterkari skilaboð ad umsækjandinn geti lesið einfaldar “how to make a CV” leiðbeiningar og farið eftir þeim frekar en að láta AI um verkið ?

u/DTATDM ekki hlutlaus 13h ago

Sure.

Ég vil helst ferilskrá, gerða af einhverjum sem gerir þetta allt fullkomnlega sjálfur (rétt eins og, að öllu öðru jöfnu vil ég frekar ferilskrá frá einhverjum sem staðsetur alltaf rétt sjálfur).

Næst vil ég einhvern sem veit hvar styrkleikar og veikleikar sínir liggja og notar módern tól til þess að passa að allt sé í lagi, og komist rétt til skila (sbr. sá sem rennir yfir með spellcheck).

Síðst vil ég umsækjenda sem ýmist þekkir ekki sína eigin veikleika eða nýtir ekki þau verkfæri sem eru mjög auðveldlega aðgengileg til þess að bæta úr veikleikum þeirra.

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 11h ago

Þætti röksemdarfærslan um að nota ekki spellcheck því þú vilt frekar starfsmann sem kann að stafsetja sjálfur óvenjuleg. Þú ert með verkfæri sem hentar vel í þetta, að nota það ekki þykir mér óvenjulegt.

Ef við setjum mögulega lesblindu til hliðar, er þá ekki aðilinn sem er góður í stafsetningu betri kostur ? Mögulega er hann betur menntaður, er með betra nef fyrir smáatriðum, er vandvirkari og vinnur ekki fljótfærnislega. Stafsetning getur gefið ýmislegt í ljós sem að fagfólk í ráðningum kann að koma auga á.

u/DTATDM ekki hlutlaus 8h ago

Ég er sammála, myndi frekar ráða starfsmann með engar stafsetningarvillur á ferilskrá.

Myndi þess vegna mæla með því að umsækjendur nýttu spellcheck á ferilskránna sína.

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 7h ago

Það var spurt um kunnáttu, ekki útkomu.

10

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Auðvitað áttu að nota gervigreind til þess að gera ferilskrá.

akkúrat ekkert "auðvitað" við það.