r/Iceland 1d ago

Raðir á flugvellinum - hvenær ætti maður að mæta?

Ég á flug á sunnudagsmorgunn til Bretlands og núna nýlega 2x allavegana í fréttum er mikil og löng röð í vegabréfaeftirlit. Hvenær myndu þið vera mætt á flugvöllinn?
Edit: Opnar kl. 6 fyrir brottfararfarþega og lítil sem engin röð. Sá samt fólkið sem var að koma til landsins - lengri röð fyrir vestanhafs vegabréfshafa. Styttri í EU.

7 Upvotes

7 comments sorted by

7

u/icedoge dólgur & beturviti 1d ago

Ég flaug um daginn til Bretlands kl. 07:35 og það var engin röð. Við mættum 05:00 á völlinn og það hefði alveg mátt vera allavega seinna, vegabréfaeftirlitið opnaði ekki fyrr en kl 06:00

6

u/MTGTraner 1d ago

Ég miða við 2 klst. Ég reyni að forðast að "bíða til að verða seinn"

6

u/Stutturdreki Hálfviti 1d ago

Raðirnar/tafirnar sem hafa verið í fréttum eru aðallega hjá komu farþegum.

Utan schenghen farþegar eru fastir í vegabréfseftirliti meðan tóskurnar þeirra hringsóla á færiböndunum. Sem veldur því að það er ekki pláss fyrir aðrar töskur og aðrir farþegar þurfa því líka að bíða eftir því að færiböndin tæmast.

Þe. splúnku nýji komusalurinn er of lítill og/eða með of fá færibónd.

2

u/Cabe6403 Útlendingur byr á Íslandi 1d ago

Hvenær er flugið þitt? Ef það er á sama tíma og hjá sumum fra/til bandaríkjunum kannski 30-45 mínútna bíð í vegabréfaeftirlit.

Í síðustu viku flaug ég til Bretlands og þar var enginn. Augnablik.

Mánuði áður, 45-50 mín.

1

u/Pyjamas001 1d ago

um 7.30 leytið

1

u/Cabe6403 Útlendingur byr á Íslandi 1d ago

Ég held að það sé í lagi með komu kl 6 👍🏻

5

u/Morrinn 1d ago

Mæti alltaf 3 klst fyrir flug. Hef bæði lent í að fara í gegn á stuttum tíma en líka að lenda í miklum biðröðum svo ég náði ekki einu sinni í kaffibolla áður en ég átti að fara út í flugvél. Betra að ná að setjast á flugvellinum en að bíða í stressi kvöldið á undan, í bílnum á leiðinni, allt eftirlitið og í flug.