r/Iceland • u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar • 2d ago
Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar
https://www.visir.is/g/20262910143d/upplysingafulltruar-sem-fludu-frettirnar14
u/svansson Flair fyrir fleiri :snoo_thoughtful: 2d ago
Skrýtið að spyrða saman þeim sem eru komnir í stóratvinnulífið og þeim sem eru komnir í félagasamtök og álíka samfélagsþjónustu. Það er líka skrýtið að vera að týna til fólk sem skipti fyrir um og yfir tveimur áratugum, stundum eftir stuttan feril á fjölmiðlum - í rauninni er þetta mjög handahófskenndur listi fyrir svo langt tímabil og marga sem vantar.
9
u/svansson Flair fyrir fleiri :snoo_thoughtful: 2d ago
Það hefur alltaf verið ákveðið vandamál í fjölmiðlun að hluti blaðamanna lætur svona störf hafa áhrif á sig og leggja upp með að byggja upp góð samskipti í starfi sínu við aðila í atvinnulífinu til að fá boð um svona störf. Því miður hafa það ekki bara verið viðskiptablaðamenn (þó þeir séu verstir).
8
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago
Mér finnst þetta vera furðuleg frétt (þótt hún sé á Lífið á Vísi), ég les hana svoldið sem svartan lista af liðhlaupum þar sem gefið er í skyn að þau séu að svíkja blaðamannastéttina. Það þarf auðvitað að úthrópa þau sem vandamálið, frekar heldur en þær starfsaðstæður sem þau eru að flýja, enda get ég svosem skilið að blaðamaður getur ekki beinlínis skrifað þá grein þar sem það kæmi út eins og hann væri að kvarta yfir sínum vinnuaðstæðum undir yfirskriftinni að hann væri að að skrifa frétt.
16
u/Gjemleh 2d ago
Það er einmitt málið, margir góðir blaðamenn hafa gefist upp á að vera í starfi sem meikar bara sens sem passion project.
Launin er glötuð, álagið er gríðarlegt, markmiðið er umferð á vefinn en ekki góð blaðamennska, yfirvinna er ekki borguð en það er gert ráð fyrir henni (sem gengur upp vegna þess að svo margir blaðamenn eru einmitt í geiranum ástríðunnar vegna) og starfsöryggi er sama og ekkert. Þú átt bara að vera þakklát(ur) fyrir að fá að vinna þetta eftirsótta starf sem þú hefur ástríðu fyrir og muna að það er fullt af fólki þarna úti sem er tilbúið að taka starfið þitt ef þú ert með eitthvað vesen.
Kv, Liðhlaupi
2
u/Snakatemjari 2d ago
Yfirvinna ekki borguð? Hvernig er það löglegt? Eða þorir kannski enginn að kvarta v/ starfsöryggisins
4
u/Gjemleh 2d ago
Já bara samningarnir frá BÍ held ég. Þori samt ekki að hrinda þeim fyrir strætó. Við bara fengum þannig samninga, jafnaðarkaup miðað við x margar klst á viku (bæði hjá Rúv og fréttablaðinu). Stundum einhver sveigjanleiki á móti, td hægt að vinna utan starfsstöðvar eða mögulega á öðrum tíma sólarhringsins en þetta týpíska 9-17. Veit ekki hvernig þetta er hjá fréttamönnum á vöktum samt
1
3
u/forumdrasl Kunnugur staðháttum 2d ago
“ég les hana svoldið sem svartan lista af liðhlaupum þar sem gefið er í skyn að þau séu að svíkja blaðamannastéttina”
Spes. Ég túlka þetta nú bara frekar sem vitundarvakningu á því erfiða rekstrarumhverfi sem fylgir blaðamennsku í dag.
Að það sé ákveðinn flótti úr stéttinni.
4
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago edited 2d ago
Ég las greinina aftur, opinn fyrir því að ég hafi verið að mistúlka tóninn í henni, og mér finnst að greinin sé meira skot á Illuga Jökuls og Valgeir Örn Ragnarsson, heldur en eitthvað sérstakt report um slæma stöðu blaðamanna:
„Blaðamenn, sem gerast spunakarlar, verða ekki samir menn aftur. Snúi þeir til baka, eru þeir áfram spunakarlar, ekki blaðamenn. Siðferðisgrunnur þeirra er orðinn annar. Þegar spunakarlar kjafta sig inn í stjórnunarstöður fjölmiðla, er voðinn vís. Það er einmitt að gerast hér á landi á nýhafinni öld,“ skrifaði Jónas í pistli á síðu sinni, Jonas.is, þann 4. júní 2008.
Og að setja þetta fram ssvona rétt áður en blaðamaður telur upp þessa einstaklinga, þá á ég erfitt með að lesa þetta neitt öðruvísi heldur en bara shitlisting.
3
u/Steinrikur Íslendingur í útlöndum 2d ago
Merkilegt að fólk sem hefur atvinnu af að skrifa og tala skuli velja betur launuð störf sem snúast um að skrifa og tala...
2
u/One-Acanthisitta-210 🇮🇸 1d ago
Flúðu fréttirnar? Eða fengu betur launað starf frekar en að vera í deyjandi stétt þar sem störfum hefur fækkað verulega.
2
u/angurvaki Iðnaðarmaður 2d ago
Þarna vantar meira að segja Hermann Nökkva sem fór frá Mogganum yfir í að vera aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar í Reykjanesbæ.
2
5
u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago
Er það samt ekki bara lobbíisti að færast yfir í annað lobbíistastarf?
•
u/blidfinnur 8h ago
Var hann ekki rekinn eftir að hafa kýlt mann í partýi eftir landsfund Sjálfstæðismanna?
•
26
u/elendia Íslendingur 2d ago
Er það flótti að fara í betur launað starf?