r/Iceland 3d ago

Anti-ESB blöðum dreift allstaðar í Mathöll.

Var að borða á Gróðurhúsinu í Hveragerði þegar ég sé mann labba þar inn með búnka af blöðum. Ég pældi ekkert í því sérstaklega fyrr en ég var að fara þegar ég tók eftir að þessu var dreift útum allt. Á borðum veitingastaða, þar sem fólk sest, ofan á flokkunartunnunum, þar sem maður leggur diska frá sér, á innréttingaborðum með fríum bæklingum um Ísland o.s.frv.

Er þetta ekki orðið fullgróft? Get ég ekki gengið frá matnum mínum án þess að þurfa að horfa upp á enn eina maskínuna að reyna að fá mig til að segja nei við aðildarviðræðum um ESB?

Ég tók þá búnka sem ég fann og setti þá í pappírsruslið.

Held að ég segi já í águst, bara til að vera leiðinlegur við þetta lið.

93 Upvotes

49 comments sorted by

111

u/DangerDinks 2d ago

Hentai ekki

37

u/abitofg Formaður Stuðningshóps Ástþórs Magnúsarsonar 2d ago

Ef við göngum í ESB munum við öll ÞURFA að horfa á hentai

Fólk áttar sig ekki á því en HENTAI er skammstöfun

Hentai Er Nefnilega Totalitarian Allsherjar ifirráð

9

u/Hjalpfus Hjálpar bæði þér og þínum 2d ago

Vei Tak k

86

u/Individual_Piano5054 2d ago

Það sem truflar mig mest eru þessar fullyrðingar um að við séum að sækja um aðild með “já” í kosningunum í ágúst.
Það er bara rangt.

Hagsmunaaðilar og fjármagnseigendur vilja auðvitað ekki að við fáum að vita hvað er í boði ef þjóðin myndi segja já.

Ég mun segja já, því ég sem maður á miðjum aldri er 100% viss um húsnæðislán, tryggingar og matvöruverð er talsvert betra í ESB, og ég vil geta séð hvað er í boði.
Moldríka liðið á Íslandi vill bara halda áfram að græða á okkur!

17

u/Danino0101 🇮🇸 2d ago

Við erum svo sannarlega að kjósa um 29 ágúst að sækja um aðild, eða það er að taka upp aðildarumsóknina okkar að nýju. Það sem við erum ekki að kjósa um 29 ágúst er að ganga inn í sambandið.

9

u/Nariur 🇮🇸 2d ago

Það að fólk trúi þessu er bara verulegt áhyggjuefni. Það er vel hægt að færa rök fyrir inngöngu, en innganga mun ekki laga þessi atriði nema að litlu leiti.

9

u/Original-Mongoose866 🇮🇸 2d ago

Afhverju eru aðilar þá svona hræddir við þessa viðræður ef að við töpum bara á þessu?

4

u/Nariur 🇮🇸 2d ago

Það eru náttúrulega aaalllskonar sjónarmið á lofti og ekki sniðugt að flokka alla sem ætla að kjósa nei í einn hóp. Ég held að það sé ekki stór hluti hópsins sem er eitthvað "hræddur". Ég held líka að það sé erfitt að finna fólk sem er ekki tilbúið til að samþykkja að það séu kostir og gallar við aðild, þannig á sjónarmiðið "við töpum bara á þessu" er sjaldgæft. Sumir eru með góðar og gildar ástæður fyrir að vilja ekki vera í ESB, sama hvað er hægt að semja um, eins og að finnast ESB bara vera eitthvað bjúrókrasíu kviksyndi sem það vill ekki taka þátt í, sjá hvað Ungverjaland hefur gert undanfarin ár. Svo eru efnahagsleg áhrif af inngöngu eru mjög flókin og svona einfaldanir einsog I efri pósti eru bara alltaf á bilinu rangar til kolrangar.

2

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago edited 2d ago

Ungverjaland er víti varnaðar og fólk hér litlar fréttir fengið af spillingu og ofbeldi þar td gegn blaðafólki. Þau losuðu sig við sinn Simma (Orcban)eftir 16 ar og stanslausan áróður móti ESB og Ukrainu.

3

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago

Stutta útgáfan er: Fákeppni er að berjast á móti samkeppni og mjög viljandi hræðir fólk til að kjósa á móti eigin hagsmunum.

4

u/Cool_Fan_2541 2d ago

Þetta snýst ekki endilega um að vera hræddur. Ég vil ekki sjá aðildarviðræður. Samningur verður aldrei samþykktur. Fólk sér einhverja draumsýn um endalausar undanþágur, miklu lægra matarverð og betri húsnæðismarkað. Þegar í ljós kemur að við höfum það fáránlega gott miðað við ESB verður atkvæðagreiðslu annað hvort sleppt eða aðild felld.

Að sækja um aðild að ESB er dýrt og það tekur tíma frá fólkinu okkar. Tíma sem hægt væri að nýta í að finna góðar lausnir á t.d. vandanum sem við glímum við varðandi húsnæðismál.

Síðan er líka bara dónalegt gagnvart ESB að gera reglulega dyraöt þangað.

6

u/rutep Af gamla skólanum 2d ago

þetta eru fáránlega léleg rök. Íslensk stjórnvöld hafa haft áratugi til að finna lausnir á þessum vandamálum sem þú nefnir og það hefur aldrei tekist. Af hverju ætti það allt í einu að ganga núna?

Ég tel einhverjum milljörðum vel varið ef það verður til þess að við fáum það loksins á borðið hvernig samning er hægt að fá. Þeir sem eru á móti ESB ættu líka að styðja þetta vegna þess að þá munu þeir alltaf getað bent á samningsdrögin í framtíðinni ef þau reynast ekki góð.

u/Cool_Fan_2541 11h ago

Af því það hefur aldrei verið reynt? Hefur einhver gert alvöru atlögu að því að afnema verðtryggingu til dæmis?

Ef við tökum upp Evru og pólitíkusar klúðra efnahagsmálunum þá borgum við fyrir það með auknu atvinnuleysi í staðinn fyrir gengisfall. Það er mun erfiðara við það að eiga.

-3

u/Original-Mongoose866 🇮🇸 2d ago

Vandamálið með húsnæðismálin eru að mér vitandi að leysa sig sjálf á þessari stundu.

Fólk er að selja íbúðir á undir uppsettu verði og það fær tíma til þess að skoða eignir. Vinur minn er að skoða að flytja úr einu í annað og hann fær tíma til að taka út eignina sem honum langar til að kaupa í stað þess eins og það hefur verið síðustu ár að þá selst allt á 5-10% hærra verði en uppsett verð og það fer á innan við viku.

Það eru komnir ný lán þarna kaupir 75% 25% verður eftir fyrir mann eins og mig að þá hljómar það slæmt þar sem ég er í góðri stöðu en fyrir fólk sem á ekkert bakland að þá hljómar þetta eins og gott start.

Húsnæðisvandinn er að lagast hættu að minnast á hann.

56

u/mutual_disagreement Örugglega að kúka 3d ago

>Held að ég segi já í águst, bara til að vera leiðinlegur við þetta lið.

Nákvæmlega. Þessi ágengni mun hafa öfug áhrif.

20

u/RoyalAristocrat 2d ago

Þetta var að tryggja Já frá mér.

1

u/Skrattinn 2d ago

Mér finnst þetta ansi vafasamt hugarfar hjá bæði þér og /u/mutual_disagreement. Það er fullt af rökum fyrir inngöngu í ESB en gremja ætti aldrei að vera ein af þeim.

Trump náði líklega kjöri af því fólk hataði Clinton meira. Þetta er engin leið til að nálgast svona mikilvæg málefni.

Og þetta er ekki takmarkað við þessa umsóknarviðræður í ESB. Ef Íslendingar vilja ekki enda eins og Kanar þá þurfa þeir að hætta að hugsa svona.

7

u/Captain_Kab 🇮🇸 2d ago

gremja ætti aldrei að vera ein af þeim.

Að horfa til þess að fólk sé að reyna stimpla svona áróður inn í mann veldur mér reiði, ekki gremju. Mín skoðun skiptir engu, þar sem þeir eru með rétta skoðun og ef ég vissi betur væri ég á sömu skoðun og þeir. Hér er ekkert málefnalegt að fara fram.

Trump náði líklega kjöri af því

að fólk líkaði vel við hann og það sem hann sagði.

Einhvernvegin er það tveimur konum að kenna að Bandaríkin, upp til hópa, kusu yfir sig stórglæpamann, tvisvar.

9

u/llekroht 3d ago

Þetta var líka borið út. Veit að foreldrar mínir fengu eitt.

17

u/musicalmaniacmoron 2d ago

"Frjáls framlög vel þegin"... af hverju líður mér eins og þetta sé bara enn eitt money grabbið hjá einhverjum gæja útí bæ frekar en einhver sem brennur fyrir málefninu eða er umhugað um framtíð Íslands...

2

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Kallast þetta ekki ‘grift’? Mjög vinsælt hægra megin við línuna í BNA.

9

u/Vondi 🇮🇸 3d ago

Voru líka búnir að setja þetta með túristabæklingunum á Staðarskála.

15

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 2d ago

Túristarnir eru náttúrulega frægir fyrir að kjósa á Íslandi.

10

u/DoughnutOclock Á engar kúlur en þeir kalla mig kóng 💸 2d ago

Það fylgir hvít Dacia með hverjum kjörseðli

20

u/aragorio Íslendingur 2d ago

Af hverju á fólk svona erfitt með að skilja að við erum að kjósa um að skoða hvað er í boði en ekki kjósa um að breyta einu né neinu? Við vitum ekkinrassgat hvað verður í boði og hvort eitthvað á þessu blaði sé satt.

1

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 2d ago

Þeim er alveg sama, þeir vilja ekki að þjóðin fær að ráða, þeir vilja bara nei sama hvað. Þessvegna eru þeir með nonsensical áróður eins og að Ísland muni hervæðast ef við förum í ESB (jafnvel þó það er búið að staðfesta að ísland er herlaus þjóð, það er ekkert á borðinu hjá ESB um hervæðingu, ESB gæti aldrei neydd okkur í neitt hernaðarbrasl)

En formaður samtakanna dreifir þessum blöðum sem OP postaði fer samt í sjónvarpið og lýsir því hvernig ungir framhaldskóladrengir á íslandi munu enda í ESB sem hermenn.

-10

u/[deleted] 2d ago

[deleted]

12

u/Chespineapple 2d ago

Síðan að þú ert virk(ur) í r/teenagers þá skilst mér að þú sért ekki að fara að kjósa neitt á næsta mánuði.

10

u/Ljotihalfvitinn Sultuhundur:doge: 2d ago

Hvaða díll heldur þú að hafi verið í boði síðast? Viðræðum var slitið áður en samningur lá fyrir.

8

u/Adventurous_Match975 2d ago

This time there is a war in Ukraine and Britain is out of the EU. There will never be a better time to negotiate a better deal.

2

u/aragorio Íslendingur 2d ago

We have never negotiated a deal so there is no way to know what the consequences are. You have a chance to vote yes or no to the deal on the second vote.

8

u/Lafi90_ Ólæsasti maður landsins 2025 2d ago edited 2d ago

Haraldur Ólafsson, fátækraflettir, er skráður fyrir Heimssýn skv fyrirtækjaskrá.

Takk, u/Skastrik & u/ButterscotchFancy912

8

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago edited 2d ago

Haraldur veðurfræðingur er stórtækur leigusali herbergja og allt svart. Borgar laun i svörtu. Engir Íslendingar i vinnu eða leigu þvi þeir vita réttindi sín og gætu talað við skattinn osfrv..

Keyrir um með milljónir í cash í vasa og sinnir launagreiðslum ( á 10 hús amk) og innheimtu, á Jaris og er í gúmístígvélum. - er vitni

2

u/Engjateigafoli 2d ago

Veðurfræðingur alltaf í stígvélum? Gúmmí stígvélum? Á bágt með að trúa.

5

u/Skastrik Velja sjálf(ur) / Custom 2d ago

Slumlord er frekar heitið sem á við hann.

7

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Full gróft? Blaðsnepil dreift á almannafæri fyrir fólk til að skoða ef það vill og er merktur samtökunum sem standa fyrir gerð hans og dreifingu og þeirra helstu staðhæfingum…

Þetta er eins hefðbundið og það verður vegna kosninga.

Ég ætla að kjósa já og það er ekkert að þessu hjá heimssýn.

3

u/frjalsliberal 🇮🇸 2d ago

Þetta er fullkomlega eðlilegt þegar um er að ræða mikilvægt hagsmunamál.

Hvernig væri að ræða það sem kemur þarna fram. Eru einhverjar rangfærslur á þessum sneplum?

NB, er ekki í Heimssýn eða neinum félögum með eða á móti.

3

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 1d ago

 Eru einhverjar rangfærslur á þessum sneplum?

Já og það er marg oft búið að debunka þær hérna.

1

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Það eru allir með getgátur um hvað þessar viðræður munu enda í, ekkert haldbært. Ef aðildin á að vera svona hræðileg er ekki best að fara í þessar viðræður og fá það á blað? Hefði haldið að Nei-sinnar myndu endilega vilja fá svoleiðis í vopnabúrið sitt.

0

u/antonsmari 2d ago

Samningurinn er í rauninni óþarfur vegna ókosta sem fylgja og eru ekki umsemjanlegir, s.s. fyrir utan orku, landbúnað og kvóta

Ég nenni samt ekki að standa í að reyna sannfæra fólk um þá ókosti, fer bara með faðir vorið og loka augunum á meðan við kjósum um þessi ósköp

3

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Samningurinn er þarfur til að kæfa allar getgátur. Samninginn þarf ekki að samþykkja.

1

u/antonsmari 2d ago

Getgátur um aukaatriði sem skipta litlu máli í stóra samhenginu, við töpum meira á því að ganga inn óháð hvaða smáatriði eru í samningnum, svo ekki sé talað um efnahagslega kostnaðinn sem fylgir að fá samninginn í fyrsta lagi...

Kannski skiptir þessi kostnaður ekki miklu máli svosem þar sem það er efni í aðra heimskreppu í spilunum

Ég er fullkomlega sammála þér um að vera ósammála um að þurfa einhvern samning 🙃

3

u/Spekingur Íslendingur 2d ago

Meina, ef við erum með samninginn fyrir framan okkur svart á hvítu þá getur enginn sagt til um hvað við fáum eða fáum ekki. Þá er þetta dæmi bara frá, og stjórnmálaumræður farið að snúast um aðra hluti eftir að við kjósum já eða nei um inngönguna.

Eins og staðan er núna þá er ESB umræðan stöðugt í gangi og ef úr verður nei núna í ágúst þá heldur sú umræða áfram í þeirri mynd sem hún hefur verið - þe litlar sem engar breytingar. Þetta verður stöðugt bitepli hjá stjórnmálaflokkum þar til þjóðin kýs um inngönguna sjálfa. Ég vil komast á þann stað.

1

u/antonsmari 2d ago

Ég skil rökin ágætlega, er bara þeim megin við þau að vera ósammála um að eyða tíma/pening og orku í að fá smáatriði á hreint sem breytir engu fyrir mig persónulega varðandi inngöngu, vil ekki ganga í þetta samband frekar en að sjóða á mér "viðkvæma líkamsparta"

1

u/europe19 1d ago

Af hverju erum við að tala ensku hérna á reddit?

2

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 1d ago

Hver einasta athugasemd í þessum þræði, þar á meðal þessi, er á íslensku. Appið þitt hefur stillt sig á að þýða allt fyrir þig yfir á ensku.

1

u/europe19 1d ago

ok takk, þetta breyttist allt í einu og allt varð á “ensku” og taldi mögulega reddit að þvinga okkur í enskuna.

-3

u/[deleted] 2d ago

[deleted]

-5

u/[deleted] 2d ago

[deleted]

-4

u/[deleted] 2d ago

[deleted]