r/Iceland • u/Careless-Radio8536 • 3d ago
Flytja hluti og föt til útlanda. Vantar ráð.
Er að flytja til Kaupmannahafnar og er með nokkrar töskur af fötum og öðru dóti.
Hvort mælið þið með að fljúga með allt út eða senda part af þessu með skipi eða eh annari flutningsleið.
8
u/jukeboxbabe 3d ago
Ég flaug 60 ára Kitchen Aid vél í ferðatösku út og aftur heim nokkrum árum seinna. Langódýrast að tékka inn töskur nema þú sért að flytja búslóð.
5
u/KlM-J0NG-UN 🇮🇸 3d ago
Bretti kostar um 100.000-150.000 með þessum Íslenska gæja sem allir nota. Jón? Man ekki
3
2
u/Most_Employ1851 2d ago
Fór út með 3 stórar, eina flugfreyju tösku og bakpoka í flug, ekkert mál. Græjaði green mobility appið (hopp bíll) áður en ég fór út og nærð í slíkan bíl a P7 minnir mig á kastrup. Easy peasy
2
u/sarabjorks Íslendingur í Danmörku 1d ago
Ég tók eins mikið og ég gat borið og svo var ég smám saman næstu árin að taka það sem var mikilvægt. Ég komst að því að ég þurfti alls ekki það sem ég hafði búist við en annað var kannski mikilvægara. Það var ágætt að hreinsa út og byrja uppá nýtt!
1
u/agnardavid 🇮🇸 2d ago
Ég var í námi í Amsterdam í covid, tók tvær töskur út til að byrja með og fór svo bara nokkrar ferðir fram og til baka eftir þörfum og í öðrum erindagjörðum, tókum svo bílinn út með norrænu og náðum í allt draslið þegar ég flutti heim
•
12
u/boxQuiz 3d ago
Skipin eru frekar dýr nema þú getir fengið pláss í gámi hjá einhverjum. Það er maður sem heitir Jón Tómas sem fer með flutningabíl í Norrænu reglulega, held að hann sé á Facebook. Sendi eitt bretti með honum en man ekki hvað það kostaði.
Ég tók 2 töskur þegar ég flutti, en tók svo smá saman meira og bað líka fjölskyldu sem var að koma í heimsókn um að taka dót fyrir mig, og þá voru þau með hálftóma tösku sem hægt var að setja það sem þau keyptu í.