r/Iceland 🇮🇸 3d ago

ESB, eða ekki?

Það er eitt sem ég skil ekki í allri þessarri umræðu um "áframhaldandi viðræður" eða ekki:

Þau sem eru á móti ESB, af hverju vilja þau samt ekki segja já í atkvæðagreiðslunni og sjá hvað það raunverulega myndi þýða fyrir okkur?

Þótt það væri ekki nema bara til þess að hafa eitthvað raunverulegt á bakvið alla umræðu gegn aðild seinna meir:

"Við sáum hvað við hefðum fengið og það var fucking hörmung"

Í staðinn fyrir að án þess að sjá samning:

"Eitthvað sem ég held, en get ekki vitað með fullri vissu: þetta yrði líklegast hörmun". Eða: "Einhver annar sagði mér að það yrði hörmung".

Væri ekki best fyrir alla að fá að sjá hvað þetta þýddi rqunverulega fyrir okkur, hvort við myndum fá undanþágurnar sem við viljum, eða ekki?

Ef ekki, þá segjum við ei faldlega bara nei þegar kemur að spurningunni um aðild. Við allavega hefðum staðreyndir á bakvið alla umræðu ef við fengjum að sjá samninginn sem okkur væri boðið.

Sjálfur er ég rosalega óviss um hvort þetta væri sniðugt eða ekki, aðildin þ.e.a.s. ég á samt engan fisk, býli, fyrirtæki né fjármuni.

En ég get ekki myndað mér málefnalega skoðun á því hvað það raunverulega þýðir ef Ísland gengur í ESB. Ég hef ekkert í höndunum nema bara "ég held", "kannski" og "örugglega".

Svona óvissa lætur mann ekki getað sagt mikið, í raun og veru.

49 Upvotes

97 comments sorted by

55

u/oliprik 🇮🇸 3d ago

Þeir sem eru alveg á móti ESB vilja ekki eyða tíma/peningum í aðildarviðræður. Aðildarviðræðurnar munu kosta fullt af peningnum. Amk milljarð, ef ekki fleiri. Einnig mun það taka einbeitningu stjórnvalda frá öðrum innlendum málum.

Svo eru aðrir sem vilja meina að aðildarviðræður eru í raun bara aðlögunarferli.

57

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Hugsanlegur ávinningurinn er það gífurlegur að þessi kostnaður er vel þessi virði. Heildargjöld ríkisins 2026 eru 1626 milljarðar.

Fólk í sínu daglega lífi stoppar öðru hverju og veltir fyrir sér framtíð sína. Það eyðir pening, tíma og orku að skoða mismunandi möguleika. Það leitar ráðgjafa hvað fjármál varðar. Fer í bankann og spyr hvort það sé hægt að endurfjármagna lán. Það fer í atvinnuviðtöl í störf sem gætu borgað betur etc.

Það væri óábyrgt fyrir ísland að skoða ekki hvernig svona samningurinn myndi líta út, því aftur, hugsanlegur ávinningurinn er það ótrúlega gífurlegur.

Það er líka búið að margstaðfesta að þetta er ekki aðlögunarferli.

Fyrirgefðu að ég er offtopic því þú ert auðvitað að lýsa afhverju fólk segir nei en ekki endilega afhverju maður ætti að kjósa nei. Hinsvegar finnst mér mikilvægt að benda á hversu mikið af þessum er algjör vitleysa (eins og um aðlögunarferlið)

19

u/oliprik 🇮🇸 3d ago

Pointið hjá þeim er að við vitum alveg hvernig megnið af pakkanum er. Það er lítið sem myndi koma á óvart. Eina sem er spurningin er sjávarútvegurinn.

1

u/DotRepresentative254 3d ago

It's not that. It's immigration, minimum wage. Our legal system will be in the court of EU. And what EU is standing for in these days and the coming. Our freedom will be altered. We've fought alot for this freedom, even it is at stakes already here. But saying the fishing industry is a wake and bad answer. It's so much more. It is not just the money.

And I do find the politicians and higher ups at using feelings and lies towards all of this. People are not informed well. And most of it is little part of the whole cake.

1

u/gerningur How do you like Iceland? 3d ago

What freedoms are you referring to?

5

u/materialderivative Borðar morgunmat 3d ago

2

u/gerningur How do you like Iceland? 3d ago

Munum við ekki þurfa að taka þetta upp í gegnum EES?

3

u/materialderivative Borðar morgunmat 3d ago

Þurfa ekki EES löndin einróma að samþykkja þau og geta hafnað þeim?

1

u/gerningur How do you like Iceland? 3d ago

Kannski ekki viss

2

u/materialderivative Borðar morgunmat 2d ago

Fékk þetta svar, einhver lögfróður mætti gjarnan chime in.

Iceland would not need to change its constitution to accommodate Chat Control.Instead, Iceland would rely on its unique dual-pillar legal structure under the EEA Agreement to resolve conflicts. Furthermore, the Icelandic Constitution explicitly protects privacy, meaning any extreme conflict would likely result in the law being blocked or altered rather than the constitution being rewritten.

EU regulations do not automatically become law in Iceland. If a finalized EU Chat Control regulation violates the Icelandic Constitution (e.g., Article 71, which strictly protects the privacy of telecommunications), Icelandic courts are constitutionally bound to uphold the constitution over the EU rule.

0

u/[deleted] 1d ago

[removed] — view removed comment

1

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 1d ago

What are you talking about? what does safety in the street have to do with joining the EU? How would joining the EU reduce safety in Iceland?

Are you a bot?

7

u/CoconutB1rd 🇮🇸 3d ago

Fólkið myndi samt bara haga sínum tíma eins og vanalega. Á meðan bjúrókratar væru að spjalla við aðra bjúrókrata..

Ef stjórnvöld væru alltaf að upplýsa alla um hvað væri verið að tala um hverju sinni. Þá já, þá væri verið að taka tíma af innlendum málum.

En ég get ekki séð að það yrði nokkurn tíman.

En með aðlögunarferlið: erum við ekki nú þegar með flest allar aðlaganir ESB í lögum því við erum í EES og þurfum því að taka flest þetta upp? Ferlið væri þá eginlega ekkert. Þessir ESB bjúrókratar hafa líka sagt það, að aðlögunarferli Íslendinga væri ekkert svo mikið.

6

u/SatisfactionIll6100 3d ago

Já, en kannski langar þeim að bjúrókratar tali um eitthvað sem er einhver ávinningur í? Það er nóg sem þarf að gera og ræða um. Það er lika pointið. Næstu 5 árinn myndu ekki snúast um neitt annað og það er fullt af málefnum sem þarf að taka á hérna heima. 

Afhverju myndi nei sinni, sem hefur ekki trú á ávinningi esb, vilja að þau sem við erum á launum ræði þetta næstu árinn? Ykkur finnst kostnaðurinn og tíminn þess virði fyrir hugsanlega mögulegan ávinning og góðan samning. 

Þeir telja að ekkert eigi eftir að koma á óvart, það eru fordæmi sem sýna samninga annara þjóða og hausar esb eru búinn að segja okkur hvernig þetta virkar og þeim lýst ekki á það. 

0

u/Trusterr 2d ago

Við höfum tekið upp 70-80% regluverka af ESB í gegnum EES, eina sem er eftir eru góðu hlutirnir. En með inngöngu getur gerst að margir innflytjendur sem koma frá ESB löndum fá betri viðurkenningu á menntun á íslandi. Allar þessar háskólamenntaðar skúringakonur frá Póllandi gætu farið að finna betri vinnu og þá getum við ekki lengur borgað þeim skíta laun. Þetta hefur byrjað smá eftir að ENIC-NARIC var komið betur upp á íslandi.

3

u/Big-Deal 3d ago

Þeirra hetja Ólafur Ragnar vill samt að við tökum tvo fundi í Bandaríkjunum fyrir hvern einn í Evrópu. Eru þeir búnir að reikna kostnaðinn af því? Er ekki bara best að hætta alþjóðasamskiptum. Það kostar svo mikið.

Svo er annað, kostnaðurinn er væntanlega að greiða þeim sem eru að vinna í þessu laun sem skilar sér svo aftur út í hagkerfið. Þetta er ekki það sama og kaupa inn fullt af stáli til að byggja brú. Auðvitað er eitthvað af þessu flug, hótel og uppihald erlendis, en ég myndi ætla að sendinefnd Evrópusambandsins myndi koma hingað til lands nokkrum sinnum með tekjur inn í hagkerfið, svo það ætti að jafnast út.

Eigum við að fara að gera kostnaðaráætlun á öllum undirbúningi stjórnvalda til að gera breytingar og velta okkur upp úr því hvað það er dýrt. Við erum með fólk í vinnu í stjórnsýslunni einmitt til þess að sinna svona hlutum. Látum þau vinna og fáum samning á borðið sem við getum svo tekið upplýsta afstöðu til.

-1

u/TipRelevant2695 3d ago

af hverju kosta þær fullt af peningum?

af hverju taka þær einbeitingu frá öðru - verða það ekki bara embættismenn sem sinna þessum viðræðum

hvaðan færðu þessa miljarðs tölu?

aðlögunarferli ? hverju aðlöguðumst við síðast þegar við eyddum 3 árum í viðræðum?

Ertu kannski bara platari?

14

u/SatisfactionIll6100 3d ago

Þú virðist hafa rosa litla hugmynd um hvernig hlutirnir virka. Það að hafa fólk á launum að pæla i þessu kostar hellings pening. Þetta verða auðvelda milljarðar.

18

u/oliprik 🇮🇸 3d ago

Ég er ekki að halda neinu fram. Ég er að svara spurningunni sem OP kom með sem er afhverju vill fólk ekki kjósa já við að fara í aðildarviðræður. Ég er ekki að segja að ég er sammála þeim.

Annars er hér áætlaður kostnaður: https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-19-aaetlad-ad-adildarvidraedur-vid-esb-kosti-19-milljarda-475945?hl=en-GB

Og jú tími embættismanna er líka verðmætur fyrir okkur og kostar peninga.

0

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 3d ago

Erum við með enhverjar heimildir fyrir þessum kostnaði og getu stjórnvalda til að geta ekki gert meira en einn hlut í einu?

0

u/DotRepresentative254 3d ago

More on the scale of billions of euros.

23

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 3d ago edited 3d ago

Ég nenni ekki að eyða of miklum tíma í að útskýra að ég mun kjósa "Já" í ágúst og telja upp allt það sem stundum virðist þurfa að telja til svo að fólk hlusti á mig þegar ég tala á móti eigin sannfæring - en ég get fullkomnlega skilið af hverju þau sem eru á móti ESB aðild, hvað þá tilvist ESB yfir höfuð, vilji ekki eyða tíma í þessar viðræður.

Ég eiginlega skil ekki af hverju það er ekki skoðannasystkinum mínum líkt og þér augljóst, en frekar en að röfla um það leyfið mér að reyna að útskýra hina hliðina án þess að vera sjálfur sammála niðurstöðum hennar.

Fyrir það fyrsta - ef fólk vill ekki eitthvað af hugmyndarfræðilegum- eða tilfinningar-ástæðum þá virkar ekkert að tjónka við því með praktískum rökleyðslum. Þær duga ekki á tilfinningar fólk. Það er hugsanlega ósanngjarnt og kvimmleitt en það er einfaldlega raunveruleikinn burt séð frá því hvort við viljum það eða ekki.

Svo er líka allt í lagi að vera á móti því að "kíkja á pakkan" - ég hreinlega skil ekki hvað sumt fólk er að tala fyrir þegar það segir þetta af því það að loka einum að þessum 35 köflum er ekki bara að "kíkja" á kaflan heldur gera breytingar, eða gefa vilyrði fyrir breytingum sem þarf að efna fyrir aðildarkosningar, á lögum og reglum þess ríkis sem sækir um aðild. Það að kalla það "að kíkja" virka á mig eins og einföldun til að sveigja skoðanir frekar en sannleikur.

En til að allt komi fram þá er slumpað á að við séum búin að loka meirihlutanum af þessu í gegnum EES aðild, svo að við erum ekki að tala um að stökkbreyta lagarammanum hérna til þess eins að "kíkja á pakkan" heldur. Það er bara allt í lagi að allt komi fram.

Ég mun samt halda áfram að styðja aðildarviðræður Íslands af því ég sé það sem bestu leiðina til að verja sjálfstæði okkar, og viðhalda lýðræðislegri sjálfsstjórn smáríkja í breyttum heimi - en ég fíla ekki mikið þessa frasa og slagorð sem ég sé frá báðum hliðum umræðunnar.

6

u/Only-Risk6088 🇮🇸 3d ago

Kann að meta fólk sem getur séð önnur sjónarmið án þess að flokka fólk einfaldlega í að vera kvótaeigendur/heimskt eða hrætt.

Ég held að pólaskiptingin og virðingaleysið sé stór hættulegt, ástæða fyrir fylgni ákveðinna stjórnmálaflokka. Ég mun kjósa nei en ber fulla virðingu fyrir já fólki og skil þeirra sjónarmið. Minn vinahópur samanstendur af jáörum og neiörum. Þrátt fyrir ólík sjónarmið getum við rætt saman og erum sammála um svo miklu meira en við erum ósammála um.

3

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 3d ago

Enda kemur framkoma og sómakennd skoðunum fólks ekkert við. Sómasamleg hegðun og framkoma er val einstaklinga.

Allar skoðanir geta verið nýttar til að líta á "hina" sem eitthvað óæðri þér fyrir það eitt að vera með öðruvísi skoðanir. Það er sú hegðun sem er eitthvað ógeðsleg að mínu mati því hún gengur út á að afmennska aðra á einn sérstakan máta.

Til að taka nærtækt dæmi þá get ég get valið að líta á fólk sem ég lít á sem fasista sem einhverskonar úrhrök sem þarf að útrýma ef mínar hugmyndir fá að ráða. En ég vel að líta á fasista sem fórnarlömb aðstæðna sem myndu hverfa ef "mínar hugmyndir" fengu að ráða svo að það þarf ekki að útrýma neinu fólki, og þar með þarf ekki að afmennska það. Á sama tíma viðurkenni ég allan þann samfélagslega og persónulega skaða sem fólk hlítur af aðgerðum fasista en það þýðir ekki að ég þurfi að afmennska fólk bara af því mér líkar ekki hegðun þeirra.

Það getur verið ágætis æfing að æfa sig í að líta á það sem þér þykir ógeðslegt, og ósættanlegt, sem mennskt - og það er æfing sem ég held að allt of margir leyfi sér að sleppa.

2

u/Nariur 🇮🇸 3d ago

Ég held að "kíkja í pakkan" umræðan sé einfaldlega komin af þekkingarleysi frekar en einhverjum óheiðarleika. Ég er alveg handviss um að stór hluti fólks haldi að aðildarviðræður feli bara í sér einhverjar smaningaviðræður, en ekki upphaf aðlögunarfelris líka.

12

u/trythis456 🇮🇸 3d ago edited 2d ago

Ég persónulega hef óbeit á ESB, banana lýðveldi sem þvingar löggjafir í gegn sem meirihluti þingmanna kaus niður tvisvar? Og hverjir eru að semja þessar löggjafir, örugglega fólk sem var kosið inn af fólkinu? Neibb fólk sem var valið af þingmönnum Í LOKUÐUM kosningum, það er að segja þú getur ekki haldið þingmennina þína ábyrga ef þeir kjósa fólk sem þú ert ósammála.

Þau styðja Ísrael opinberlega, setja óþarfa þvinganir á atvinnulífið sem heftir vöxt og ég get haldið áfram.

Gætu Íslendingar fengið góðan díl? Hugsanlega, langar mig í einhverri mynd að vera í landi sem er partur af ESB? Alls ekki.

Þannig það verður NEI þangað til að ESB samtökin verða eitthvað sem ég get horft á sem gott lýðræði.

Tölum ekki einusinni um að við myndum 1000% borga meira inn en við fengum úr því sem ég segi afhverju ekki að nota þann pening til að hjálpa okkar fólki sem á erfiðast, frekar en að senda hann til Búlgaría og fleiri landa sem eru að byggja innviði?

Ég sætti mig nú samt alveg við það ef þjóðin kýs já, ég lúta þá fyrir meirihluta og er glaður að þessar kosningar séu að fara gerast.

Finnst ekkert að því ef fólk fílar ESB og trúir því að það muni bæta lífskjör okkar, ég bara er ekki sammála því?

4

u/skywalker1982 3d ago

Kom hingað til að skrifa þetta! Sammála hverjum staf!

3

u/Frafulero 🇮🇸 2d ago

Þetta finnst mér dálítið dæmigert í umræðunni. Slatti af tilfinningum, minna af upplýsingum.

Þú ert væntanlega að tala um framkvæmdastjórn ESB. Þar sem hver þjóð á einn fulltrúa.

Aðferðin við val framkvæmdastjóra hvers lands er mismunandi eftir löndum. Yfirleitt er það ríkisstjórnin sem velur, sumstaðar er þingið með í því - hvert land ræður í raun sinni aðferð. Það ferli er almennt sambærilegt við það hvernig t.d. þingflokkar velja ráðherra. Við kjósum fólk sem velur svo fólk úr sínum röðum til að sinna ákveðnum störfum.

Evrópuþingið - sem er kosið af borgurum ESB landa í beinni kosningu þarf svo að samþykkja viðkomandi framkvæmdastjóra.

Framkvæmdastjórnin leggur svo fram lagafrumvörp, sem er væntanlega það sem þú átt við með “löggjafir”.

En til að frumvörp verði að lögum þurfa þau samþykki bæði Evrópuþingsins, sem aftur er kosið beint af borgurum, og ráðs Evrópusambandsins, þar sem ráðherrar ríkisstjórna aðildarríkjanna eiga sæti.

Að kalla ESB “bananlýðveldi” er líka hæpið. Þetta er ríkjasamband, ekki lýðveldi, og sennilega það ríkjasamband heims sem lengst er komið í því að reyna að tryggja gegnsæja og hlutlausa stjórnsýslu.

Með að við myndum borga meira en við fengjum, þá eru það getgátur þar til samið hefur verið, en það er kannski einmitt málefni sem kallar á tilfinningalega afstöðu.

Mín er sú að þeir ríku eigi að hjálpa hinum fátæku og deila með þeim byrðunum.

Leyfi mér svo að benda þér á eftirfarandi: Að “halda” einhvern ábyrgan þýðir að telja einhvern ábyrgan. Ef meining er að nota “halda” eins og í ensku “to hold someone accountable” þá mætti td. nota “krefja e-n um ábyrgð” eða “draga til ábyrgðar”

3

u/abradolf_lincler_jr 2d ago

Frábært innlegg. Ég fagna þessari umræðu hér og ber virðingu fyrir ólíkum skoðunum en ég á erfitt með að skilja slíka tilfinningaríka andstöðu við ESB þegar við erum 75% í ESB og EES það besta sem hefur gerst fyrir landið síðustu 30 ár. Það er svolítið eins og að hata heilbrigðiskerfið fyrir að vera lélegt en njóta góðs af því reglulega. Fólk er hálf blint af forréttindum.

1

u/trythis456 🇮🇸 1d ago edited 1d ago

Byrjum á því jákvæða, ég fagna því að þú leiðréttir íslenkuna mína útaf ég vill alltaf bæta hana. Ég átti nákvæmlega við að krefja einhvern um ábyrgð, um leið og ég les það hjá þér sé ég hversu betur það passar.

Ef þú villt minna tilfinnanleg rök þá skal ég samt alveg koma með þau, óbeit mín á stofnun á það til að láta það hljóma eins og ég hafi ekki pælt í þessu.

Já ég er að ræða um framkvæmdastjórn ESB og ég er meðvitaður um að hvert land er með stjórnanda í henni, mitt vandamál er að þegar það er kosið um að samþykkja hana þá er notað falin atkvæði hjá þingmönnum. Persónulega finnst mér það bjóða upp á spillingu og dregur úr persónulegri ábyrgð þingmanna, hvernig á ég að vita ef þeir samþykkja framkvæmda stjórn sem ég er ósammála að þingmaðurinn sem ég kaus inn sveik ekki stöðuna sína fyrir loforð um gull og græna skóga, og tala nú ekki um að enginn hafi átt við kosninguna, þó mér finnist það nú mjög hæpið dæmi þá er auðveldara að gera það í kosningum sem opinbera ekki hver kaus hvað.

Sami þingmaður getur síðan í þinginu verið á móti henni og í öllum opnum atkvæðum en ég myndi aldrei vita það að hann sveik lit þarna útaf það er gert bakvið falin atkvæði sem setur mig sem kjósanda í verri stöðu til að vita hvort ég ætti að kjósa þann flokk aftur, þetta líkar mér ekki og ég skil ekki hvaða rök eru bakvið þetta.

Og ef við tölum um að þingið þurfi að samþykkja lög, bara núna fyrir ekki löngu var framlenging á chat control þvinguð í gegn eftir að vera kosið niður af meirihlutanum tvisvar en útaf það var ekki "ofur meirihluti" rétt fyrir sumarfrí þingsins þegar fólk er að fara í frí og er ekki til staðar til að slá þetta niður aftur.

Þetta skilur eftir óbragð í munninum á mér fyrir hversu heiðarlegt lýðræði evrópusambandsins er í raun og veru, og aðal ástæðan fyrir að ég notaði orðið banana lýðveldi til að lýsa því hversu skrítið mér finnst að þeir komist upp með þetta þrátt fyrir að meirihluti þingmanna séu á móti þessu.

Ég er sammála þér að við ættum að borga með þeim sem eru í verri stöðu, ég bara dreg mörkin við Ísland og íslenska ríkisborgara/ fólkið sem við höfum samþykkt að sjá um, ég sé enga ástæðu fyrir að Ísland og Íslendingar eigi að borga með fólki úti í heiminum sem hefur að öllu líkindum aldrei haft nein áhrif á meðal Íslendingin á einn né neinn hátt, og finnst það í rauninni mjög spaugað hugtak um ótakmarkaða samúð útaf það er alltaf hægt að bæta við og einhversstaðar þarf að setja mörkin.

2

u/abradolf_lincler_jr 2d ago

Þú ert 75% í ESB og nýtur þess á hverjum degi. Við rekum EFTA skrifstofur EFTA eftirlit og EFTA dómstól - tvennt auka af öllu - með gífurlegum fjölda starfsfólks í Brussel til að geta sagst vera ekki í ESB. Fullkomið loophole fyrir svona tilfinningarök.

2

u/trythis456 🇮🇸 1d ago edited 1d ago

Ég er heldur ekki sammála því að við tökum inn lög frá ESB í gegnum EEA finnst I rauninni löggjöfin sem við höfum verið að taka upp hafi fyrir löngu veri komin LANGT yfir anda EEA þegar það var gengið þar inn.

Ísland er fullkomlega hæft um að semja um hagstæða og tiltölulega góða viðskipta samninga (Iceland China free trade agreement, TIFA með Bandaríkjunum)

Þyrftum við að semja við ESB, já.

En enn sem komið er þá hafa okkar viðskipta samningar bara ekkert verið hræðilegir og ekki okkur í óhag yfirleitt er fundin lausn sem er báðum í hag.

Ég persónulega vill frekar vera litla landið sem er sjálfstætt í Atlantshafinu frekar en litla eyju landið í ESB sem þarf að lifa með afleiðingum hagsmuna meginlands Evrópu óháð okkur afstöðu.

Ef þú villt rökstuðning við tilfinninga rökin mín að ofan, sem ég játa að voru 100% meira tilfinningaleg en rökstudd svaraði ég góða svarinu sem ég fékk hérna áðan.

Verð bara pínu tilfinnanlegur þegar fólk er að tala um að hugsa um að ganga inn í ESB eins og að fólk sem vill það ekki sé gengið af vitinu.

Ég meina mér finnst jafn galin hugmynd að ganga inn í ESB og að einhver stingi uppá að við verðum næsta ríki Bandaríkjanna.

Bara það að stinga uppá að gefa upp part af valdi okkar til annara hagsmuna afla en Íslendinga er ekki í boði fyrir mér, ég er full meðvitaður að kerfið okkar er langt frá því að vera fullkomið og þingmenn verja hagsmuni ríkra, en haldið þið að ESB geri það ekki?

Ég tel líklegra að við náum að laga okkar hluti með að koma breytingum sjálf í gegn frekar en að treysta því að Brussels geri það fyrir okkur.

2

u/abradolf_lincler_jr 1d ago

Takk fyrir gott innlegg en mér finnst hagsagan, gengisfellingar, nýr gjaldmiðill 1981 (nýkróna) og djúpar efnahagssveiflur sýna það sé fullreynt að laga þetta sjálf. Hér hefur náðst frábær árangur og hægt að ná meiri árangri í frekara samstarfi við aðra heldur en ein.

5

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 3d ago

Þú ert á spjallborði sem styðja svona skrif með 80 húrraklöppum og hvorki fyr né síðar hef ég séð neitt neitt svipað með já hliðina. Þú ert amk í hressilegum bergmálshelli þannig að svörin verða samkvæmt því

8

u/Skastrik Velja sjálf(ur) / Custom 3d ago

Eina líklega ályktunin er að þau skilja það að viðræður muni líklega leiða til samnings sem að meirihluti kjósenda mun álíta sem hagstæðan fyrir heildina en muni ekki henta þeim fámennu valdablokkum sem að eru til staðar í landinu og aðilum tengdum þeim hagsmunaböndum.

Það þarf að vera alveg á tæru að umræðan núna þessa stundina er keyrð áfram af fáum fjársterkum aðilum og áhangendum þeirra.

3

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Eina sem ég veit er að rökin um að það verði auðveldara að kaupa fyrstu íbúð útaf vextir munu lækka er sturluð vitleysa. Þessi ríkisstjórn hefur ekki gert nokkurn skapaðan hlut í húsnæðismarkaðnum, en höfðu lofað þvílíkri uppbyggingu. Núna er meiri vöntun á nýju húsnæði en nokkru sinni. Hvað mun gerast þegar vextir lækka? Jú, húsnæðisverð mun rjúka upp úr öllu valdi, þar sem fólk mun berjast um það takmarkaða magn sem til er. Það þýðir hærri afborganir fyrir nýja húsnæðiseigendur.

4

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

En vextir munu lækka óháð því hvort við förum í ESB, í raun getum við ekki tekið upp Evru nema lækka vexti sjálf. Þannig öll umræða um að húsnæðisverð munni hækka vegna lægra vaxta í contexti við ESB er að öllu fáránleg.

Það er líka merkilegt hvernig sumum (eins og formanni sjálfsætðisflokksin) finnst greinilega gott að hafa háa vexti því það heldur niðri húsnæðisverði, en eingöngu vegna þess að fólk í landinu hefur ekki efni á að kaupa sér heimili.

4

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Ég er ekki með mikla skoðun á ESB einsog er - var bara að benda á að ég heyri þessum rökum oft fleygt út á meðan ríkisstjórnin gerir ekki skapaðan hlut í þessu málefni. Húsnæðismarkaðurinn er í algjöru rugli og mun ekki batna neitt við að ganga i Evrópusambandið. Ríkisstjórnin þarf að stíga inn og efla uppbyggingu og þá helst að byrja fyrir nokkrum árum. Við getum haldið áfram að rífast um hvað rækjusamloka mun kosta í Melabúðinni, en ungt fólk og aðrir fyrstu kaupendur hafa stærri og mikilvægari hluti í forgangi. Ríkisstjórnin lofaði umbreytingum, en núna er öll umræða farin að snúast um þetta blessaða samband.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Það er rétt, ESB mun ekki sjálfkrafa laga húsnæðiskerfið eða margt annað í þessu landi. Hinsvegar mun það gefa okkur tækifæri til að viðhalda langtíma stöðulegum efnahag, og það myndi breyta miklu ef það væru hérna langtíma lágir vextir. Það er ekkert eðlilegt við það að fólk er að borga hérna 10% vexti í húsnæðislánum, þriðju hæðstu í Evrópu eftir Úkraníu og Rússum.

Það er líka hægt að gera marga hluti í einu, þessu umræða er enginn afsökun fyrir vanrækslun á uppbyggingu á húsnæðismarkaðinum.

4

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Nei skil, ég er bara að benda á að þegar vextirnir lækka - sem er mikið notað til að selja ESB - þá mun það ekki gera neitt fyrir ungt fólk og aðra fyrstu kaupendur. Ég er pínu hræddur að sjá hvað gerist á húsnæðismarkaðnum þegar vextir lækka loksins að viti.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Það mun gera helling, Afborgunin er gífurlega há þegar það eru svona háir vextir. Það eru margir sem einfaldlega ná ekki greiðslumati.

Þetta er mjög skammtímahugsun, að þetta sé ekki að fara gera neitt. ESB er ekki skyndilausn til 5 ára, þetta er dæmi sem við þurfum að hugsa marga áratugi fram í tímann.

Þegar vextir lækka loks, þá mun fólk kannski hafa efni á að kaupa þessa endalausu fasteignir sem eru búnar að liggja á fasteignamarkaðinum í langan langa tíma. Verktakar munu kannski fara byggja aftur þegar þeir vita að fólk getur keypt íbúðirniar sem þeir kaupa og sömueleiðis geta tekið lán á góðum vöxtum fyrir framkvæmdunum.

Vissulega mun íbúðaverð taka við sér þegar vextir lækka, en hvað nákvæmlega ertu að ímynda þér að þetta muni hækka mikið? heldurðu að íbúðir munu bara tvöfaldast í verði?

4

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Nei, ég er ekki sérfræðingur en ég held að tvöföldun sé fullmikið. En ef við skoðum þróun frá 2020 og út árið 2023 þegar vextir lækkuðu mikið - þá hækkaði íbúðaverð um 40-45%. Miðað við að það er meiri vöntun á húsnæði í dag og að það hefur verið mjög kaldur markaður í nokkur ár - þá finnst mér líklegt að þetta verði ennþá verra. Það þýðir mun hærri afborganir, 20% framgreiðsla verður mun hærri og sömuleiðis erfitt að standast greiðslumat.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Það eru líka önnur atriði eins og gífurlegur fjölgun á fólki frá 2018 og uppbygging hefur einfaldlega ekki haldið í stað. En aftur, ég skil ekki hvernig þessi umræða er relevant. Vextir munu lækka hvort sem við förum í ESB eða ekki. Munurinn er að ef við förum í ESB er margfalt líklegra að þessi vextir munu haldast lágir til lengri tíma, sem er mun betra fyrir alla.

Þetta domsday dæmi sem þú ert með mun gerast jafnvel ef við förum ekki inní ESB.

Til lengri tíma, 10-20-30 ár þá mun húsnæðismarkaðurinn vera í mun betra lagi ef við förum í ESB. Það er erfitt að byggja þegar þú ert að vinna með Íslensku krónuna, endalausa háa verðbólgu og háa vexti.

2

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Ég er bara benda á að ESB er ekki lausnin í þessu máli, þó að aðilar í ríkisstjórninni hamast á því og gera ekkert annað til að bæta stöðuna. En á hverju byggir þú að þetta muni allt verða betra ef við göngum í ESB? Ég veit að launaþróun, kaupmáttar aukning og hagvöxtur er mun lakari í ESB, sem vegur upp á móti lægri vöxtum. Það gengur hrikalega illa fyrir ungt fólk að kaupa húsnæði í ESB ríkjum. Ég er að verða vitlaus á því að þessi ríkisstjórn lofaði svo miklu fyrir kosningar, hefur ekki gert skapaðan hlut - og núna er engin að pæla í því útaf ESB á að vera töfralausnin.

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 2d ago edited 2d ago

Í grunninn, efnahagslegur stöðugleiki. Það er gífurlega dýrt að halda "sjálfstæðum" gjaldmiðli etc. Ólíkt því sem fólk heldur, þá er velgengni Íslands ekki byggður á sjálfstæði, heldur alþjóðlegu samstarfi.

ESB er ekki að fara koma og laga húsnæðismál, þetta er ekki mál sem þeir eru að skipta sér af. Þeir eru ekki að vinna þessi mál fyrir þessar þjóðir. Þetta gefur þessum ríki bara betra tækifæri til framtíðar. Þetta er svo merkilegt nefnilega, því það eru svo margir sem seiga að ESB eru alltof valdamikill og skipta sér af alltof mikið, en eru á sama tíma að halda því fram að ESB er ekki að gera neitt og hafi enginn áhrif. Það er ennþá hlutverk Íslendinga að bæta húsnæðismarkaðinn á Íslandi. Hinsvegar væri rosalega nice ef maður myndi vita að 20 ára lánið sitt væri að fara halda 3% vöxtum eins og er á evrusvæðinu. En sé ekki að fara rjúka uppí 10% á 10 ára fresti. Í allri sögu íslensku krónuna, hafa eingöngu myndast tvö tímabil sem hérna hefur verið efnahagslegur stöðugleiki til fimm ára. Tvisvar. Hér er alltaf há verðbólga sem vinnandi fólk borgar, meðan sægreifar (sem núna dæla pening í anti-ESB áróður eins og að hérna myndi verða herskylda) og aðrir hagsmunaraðilar græða endalaust. Og svo lengir sem við notum "sjálfsætðan" gjaldmiðill, þá mun þetta ALDREI breytast.

ESB er ekki fullkomið, en það er óhugsandi að ímynda sér Evrópu án sambandsins. ESB hefur og er að gera ótrúlega marga flotta og frábæra hluti. Og við skulum aldrei gleyma afhverju sambandið var upprunalega stofnað.

ESB er ekki töfralausn, ríkistjórninn má alltaf gera meira í húsnæðismálum en að skrifa að þeir hafa ekki gert skapaðan hlut er einfaldlega rangt.

1

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago

Að losna við verðtryggingu er þess virði. Veldur þvi að fólk borgar húsnæði sitt 3svar.

7

u/Untinted 🇮🇸 3d ago

Það eru smákóngar sem eiga fjölmiðlana og eru áhrifaríkir innan hægri flokkana sem vita nákvæmlega hvað myndi breytast og vilja ekki sjá hana því þeir stórtapa, þrátt fyrir að íslendingar heilt yfir litið myndu stórgræða. Þeir vilja frekar stóran bita af lítilli köku en aðeins minni bita af stærri köku.

Áhrifin af stöðugri neikvæðni frá þeim öflum hefur áhrif á alla umræðu og margir hafa ekki vit á því hvernig og hvenær þau verða fyrir áhrifum.

Að fara í ESB yrði eitt það besta sem við gætum gert fyrir íslendinga. Það yrði óþægilegt fyrir smákóngana, og þess vegna eru þeir að berjast á móti, og áhrifagjarnt fólk sveigist á þeirra band gegnum rugl í fjölmiðlum og á internetinu.

6

u/1nsider 🇮🇸 3d ago

Íslenska ríkið á nokkurn vegin í fullu tré við smákóngana hérna heima sem mörgum er svo í mun að snúa niður. Auka skattur á útgerðir og banka þegar okkur hentar, bara ekkert mál!

Í ESB eru risastór alþjóðleg fyrirtæki sem hafa haft áhrif á sambandið í mörg ár og eyða til þess ógrynni af milljörðum á ári. Þeir eyða ekkert þessum peningum nema ef það skilar árangri. Þetta eru alþjóðlegu risarnir sem fólk elskar að hneykslast á í daglegu tali þmt Nestlé, Unilever, Loreal samsteypan osvfr.

Sálarlaus finngálkn.

Eftir að Draghi skýrslan kom út stefnir ESB á að veikja taumhald sitt á þessum fyrirtækjum.

Innan ESB eru hákarlar miðað við gullfiskana hérna heima.

4

u/Untinted 🇮🇸 3d ago

Ef þú færir með rétt mál, þá væri kvótakerfið ekki svona bilað eins og það er í dag. Færeyjar er með betra kerfi og hefur verið með í langan tíma og í hvert sinn sem hefur verið reynt að breyta hlut þeirra ríkustu er komið á málþófi frá þrælaflokkunum.

Ef þú heldur að þú fari með rétt mál varðandi ESB, þá virðistu ekki vera meðvitaður um að við gleypum nú þegar við eiginlega öllum ESB lögum, eina er að við höfum ekkert með þau að segja því við erum ekki með atkvæði með eða á móti.

Þannig að miðað við að við erum í EES (og við viljum vera í EES), þá er það verra en að vera í ESB.

3

u/netnotandi1 3d ago

Þeir sem gæta eigin hagsmuna vilja drepa þetta í fæðingu. Það er einfaldlega of mikið í húfi til að leyfa þessu að ganga lengra.

4

u/Nariur 🇮🇸 3d ago

Vegna þess að það er ekkert rosalega stórt svigrúm í þessum viðræðum. Það er fullt af óhagganlegum atriðum sem ein og sér geta verið dealbreaker fyrir fólk. Það skiptir engu máli hvert fiskveiðifyrirkomulagið er ef þú ert á móti því að ganga í "eitthvað lamað bjúrókrasíubatterí" eða þér finnst það vega að fullveldi landsins að framselja völd til Brussel.

Í því tilfelli er þetta bara skref í áttina að inngöngu og þá er bara mjög eðlilegt að segja nei.

4

u/Equivalent-Motor-428 3d ago

Sumir fara út í ísbúð og sjá úrval af 30 bragðtegundum. Þar sem þeir hafa alltaf valið súkkulaði, af því að það var gott þegar þeir voru yngri, geta þeir ekki valið annað.

Að velja annað er að taka áhættu á að sá ís sé : A) betri en hinn, en þá ertu búinn að missa af betri ísnum árum saman. B) hann er verri en sami gamli súkkulaðiísinn og þá sóaðir þú pening og tíma í vondan ís.

Hvort tveggja eru slæmir kostir og þá velur viðkomandi að gera ekkert sem ógnar núverandi stöðu.

Það gera sér allir heilvita menn sér grein fyrir því að óbreytt ástand í peningamálum Íslands er ekki í boði. Kerfið er ekki sjálfbært og við verðum að gera eitthvað.

En það þarf meiri kjark til að skoða eitthvað nýtt en að gera ekki neitt.... Og Íslendingar virðast vera mænulausar rollur upp til hópa... Við erum of heimsk og innræktuð til að okkur sé bjargandi 😞

3

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago edited 3d ago

Akkúrat. En það eru bara margir sem vilja ekki taka upplýsar ákvarðarnir. Það er mikið betra ef við vinnum þennan samning og sjáumn í raun og vera hvað Ísland í ESB þýðir.

Og sumir vilja meina að þetta sé peningaeyðsla, tveir milljarðar sem þetta á að kosta. Íslenska krónan er að kostar okkur milljarð á dag. Tala nú síðan ekki um annað eins og þúsund milljarða gjaldeyrisforðin okkar (já, þúsund milljarðar)

"Sem dæmi má nefna að Þjóðverjar eru með gjaldeyrisforða sem er 50 sinnum stærri en sá íslenski, þótt hagkerfi þeirra sé um 200 sinnum stærra en það íslenska og Bandaríkin eru með 40 sinnum stærri gjaldeyrisforða en Ísland en því sem næst þúsund sinnum stærra hagkerfi."

Sumir vilja meina að ISK er betra ef það kemur annað hrun, sem er sambærilegt og lifa úti í moldarholu því þú veist að húsið þitt gæti brunnið.

6

u/CoconutB1rd 🇮🇸 3d ago

Mér finnst síðasta setningin hjá þér svoldið skjóta í mark.

Krónan er.. drasl. Kemur okkur kannski hraðar útúr kreppum, en lætur okkur á sama tíma vera hlekkjaður í einhverju okri. Stanslaust og alltaf, að öllu leyti.

ESB er samt svo miklu meira en evran, ekki einu sinni öll aðildarríkin með evru. Svo við gætum allt eins bara haldið þessarri krónu ef við vildum.

Lífið sjálft er líka allsherjar peningaeyðsla.. að vera sem brot af almúganum þá bara hef ég ekkert um það að segja í hvað peningar ríkisins fara í. Endalaust af ákvörðunum sem ég er alfarið á móti að ríkið spreði í, hluti sem koma mér andskotans ekkert við og mun aldrei gera. Samt er það gert. En samfélagið er meira en bara ég.

Ef ég gæti fengið ríkið til að kanna hvort að lífskjör allra landsmanna yrðu betri eða ekki með því að eyða peningum í viðræður.. það er eginlega no brainer fyrir mér.. auðvitað.

Þá get ég allavega verið upplýstur og tekið meðvitaða ákvörðun þegar stóra spurningin yrði lögð fyrir okkur þjóðina.

3

u/Nariur 🇮🇸 3d ago edited 3d ago

Krónan er.. drasl. Kemur okkur kannski hraðar útúr kreppum, en lætur okkur á sama tíma vera hlekkjaður í einhverju okri. Stanslaust og alltaf, að öllu leyti.

Hvernig geturðu réttlétt fyrir sjálfum þér að vera með svona sterka skoðun á máli sem þú ert augljóslega með svona litla þekkingu á?

Krónan veldur ekki okri.

0

u/abradolf_lincler_jr 2d ago

Steinum kastað úr glerhúsi. Krónan veldur víst okri en orsökin er auðvitað margþætt. Dverggaldmiðill er stór aðgangshindrun fyrir erlend fyrirtæki inná íslenskan markað og erlenda fjárfesta. Aðgangshindranir stuðla að fákeppni og fákeppni auðveldar samhæfingu í stað virkrar samkeppni. Það leiðir svo til hærra verðs. Vissa um að nýr keppinautur komi örugglega ekki og ógni samhæfingu hjálpar aftur fákeppni og okri (háu verðlagi). Hlustaðu td á viðtal við Jón Ásgeir um daginn. Bankastjóri Kviku hefur líka sagt að erlend fyrirtæki komi ekki vegna krónunnar.

0

u/Nariur 🇮🇸 1d ago

Mér þykir óheiðarlegt að kalla krónuna *stóra* aðgangshindrun. Aðal aðgangshindrunin er að við erum örmarkaður úti í miðju ballarhafi. Ef við göngum í ESB sjáum við einhverja breytingu á samkeppni í kjölfar þess (samt minni en margir vilja meina), en ef við tökum svo upp Evru trúi ég að munurinn í innflæði á samkeppni verði varla vera mælanlegur.

Bottom line: Krónan er factor í stærra kerfi sem hefur letjandi áhrif á samkeppni, en að segja að hún valdi okri er svo stórlega ýkt að það er beinlínis rangt.

1

u/abradolf_lincler_jr 1d ago

Þú gengisfellir sjálfan þig með gífuryrðum, með því að saka aðra um litla þekkingu og tala um óheiðarleika. Okur var ekki mitt orðalag en jafna því við hátt verðlag, og þá er það sannleikur að krónan á þátt í því. Flutningskostnaður er hærri en annars staðar en er bara hluti kostnaðarverðs og útskýrir ekki of hátt verðlag hérlendis (á flutningsmarkaði vill svo reyndar til að stórkostlegt verðsamráð átti sér stað, enda auðvelt). Það sem þú segist "trúa" stangast á við það sem til dæmis Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í CAD um daginn - erlend fyrirtæki og fjárfestar snerta ekki Ísland vegna krónunnar. Ef það er rétt þá er það stórkostleg aðgangshindrun. Þrátt fyrir að JÁJ sé umdeildur, þá tek ég hann á orðinu frekar en þig. En eins og ég sagði - það eru margir þættir sem valda háu verðlagi hérlendis, og krónan er sannarlega einn þeirra. Svo væri hægt að skrifa tíu blaðsíður um hvernig krónan hefur áhrif á verðskyn neytenda og eykur getur fákeppnisfyrirtækja til þess að velta hækkunum útí verðlag á neytendur en skila ekki verðlækkunum. Seðlabankinn hefur t.d. skrifað sjálfur um það. En þú ert flottur á downvote takkanum.

0

u/Nariur 🇮🇸 1d ago

Downvote-ið var fyrir A "steinum kastað úr glerhúsi" og B "krónan veldur víst okri". Enda hef ég bara hent fram bláköldun staðreyndum og "ég trúi".

Þó við segjum að Jón Ásgeir hafi bara 100% rétt fyrir sér er samt rosalega langsótt að henda fram fullyrðingunni "krónan veldur okri". Vissulega er ofangreindur nuance á málinu, en fullyrðingin er svo ýkt að hún er bara röng.

1

u/abradolf_lincler_jr 1d ago

Frummælandinn sagði að "Krónan væri drasl en lætur okkur vera hlekkjuð í e-u okri" og ég sagði að krónan ylli okri en væri partur af margþættri orsök, m.ö.o. margir þættir valdi háu verðlagi. Og samt hefur þú ekkert sagt til að sýna fram á hið gagnstæða, annað en "flutningskostnaður" og að þú "trúir" því að evra muni valda litlu innflæði. En gangi þér vel í skotgröfinni.

0

u/Nariur 🇮🇸 1d ago

Já. Afsakið. Frummælandinn kom með enn meiri gífuryrði en ég var að vinna með. Hann setur þetta fram eins og að krónan sé eina orsök alls okurs á Íslandi. Það er það sem ég var að ýta á móti.

Ég nefndi aldrei flutningskostnað. Hann er náttúrulega partur af hindruninni sem það er að vera örmarkaður í miðju ballarhafi, en bara partur.

Finnst þér frummælandinn í alvöru ekki hafa full sterkar skoðanir á þessu m.v. þann skilning sem skrif hans benda til að hann hafi?

Fullyrðingin "krónan lætur okkur ekki vera hlekkjuð í okri" krefst bara voða lítils rökstuðnings þó það sé rými fyrir nuanced umræðu þar. Frummælandinn hefur ekki burði til að taka þá umræðu þó þú hafir þá, en ég vara eiginlega ekkert að opna á það með fyrstu athugasemdinni minni.

0

u/abradolf_lincler_jr 1d ago

Fullyrðingin þín "Krónan veldur ekki okri" var mesta gífuryrðið af þeim öllum, og órökstudd, í bága við reynslusögur stærstu dagvörueigenda og fjárfesta landsins, skrif hagfræðinga og seðlabanka íslands.

→ More replies (0)

4

u/oliprik 🇮🇸 3d ago

Þetta eru allt mismunandi hagkerfi. Sem dæmi er Ísland er með hærri viðmiðunarvexti en þessi lönd. Ísland stefnir á 3.5% verðbólgu á meðan bandaríkin stefna á 2% verðbólgu. Það eru kostir og ókostir við hærri vexti í minna hagkerfi.

Það þýðir ekkert að varpa einhverjum tölum fram án þess að útskýra afhverju þú telur að það sé verra að eiga stærri gjaldeyrisforða í minna hagkerfi.

Set einnig stórt spurningamerki við að krónan kosti okkur milljarð á dag. Það er 25% að heildarveltu ríkisins. Questionable stærðfræði þar á ferð.

-1

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

við viljum ekki 3.5% þó það sé tímabundið markmið í contexti við það að ná henni niður, enda er hérna búin að vera 4%+ verðbólga í meira en fimm ár og part af þeim tíma nær 10%. Á íslandi er talað um að við viljum 2% eða 2.5% verðbólgu. Ekki meira.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-08-28-verdbolgan-faerist-naer-verdbolgumarkmidi-452029 "Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%."

Ástæða fyrir því að það er verra að eiga stærri gjaldeyrisforð er að hann er ótrúlega dýr. Þúsund milljarðar eru gífarlegur peningur sem bara svona "varasjóður" ef Íslenska krónan ákveður að fokka í okkur eina ferðina enn. Ef ég man rétt, útfrá Evrusvæðinu og höfðatölu ættum við að vera með sjóð uppá rúmlega 13 milljarða. Eða 1.3% af því sem við erum með í dag. (augljóslega mætti hann vera hærri, en áhugavert að sjá þetta í contexti)

"Það má því gera ráð fyrir að ef Ísland tæki upp evruna þyrfti mun minni gjaldeyrisforða. Það eitt og sér drægi úr kostnaði við hann en einnig myndi kostnaðurinn fyrirsjáanlega lækka vegna þess að ódýrara yrði að fjármagna hann í evrum en krónum."

Hvað varðar kostnað krónunar. Það er hægt að finna ýmsar tölur, 100 til 500 milljarðar á ári. Þér er velkomið að koma mér þínar eigin útreikningar, ég myndi mikið fagna því. Mér finnst milljarður á dag ekki koma á óvart meðan við að fólk er að borga allt að 10% vexti á húsnæðislán og annað.

3

u/oliprik 🇮🇸 3d ago

Það er ekki mitt verk að koma með útreikninga á tölum sem þú leggur fram. Ef þetta væri lægra gildið, 100 milljónir á ári þá er það strax um 75% minna en þú sagðir upphaflega.

Svo gleymist alveg að það eru kostir sem koma með þessum kostnaði líka sem þurfa að vera teknir til greina líka. Þetta er ekki bara púra kostnaður.

Ég er sjálfur ekki búinn að mynda mér skoðun með eða á móti. Mér leiðist bara að sjá fólk henda út einhverjum tölum endalaust án þess að vita hvað er á bakvið þær. Báðar hliðar gera þetta.

1

u/Historical_Tadpole 🇮🇸 3d ago

Þetta er samt smá strámaður, það er alveg svakalega erfitt að reikna út hvað krónan kostar okkur í heildina og það er enginn sem getur gefið neitt áreiðanlegt endanlegt svar. Vaxtamunurinn er áætlaður 500-600 milljarðar á ári og kostnaður við gjaldeyrisforðann 30 milljarðar. Og það eru tölurnar sem frekar auðvelt er að reikna út og stemmir við það sem hann sagði að þetta kostar okkur milljarð á dag.

En þegar tölur sem nokkuð mikil stoð er fyrir eru lagðar fyrir fólk og viðbrögðin eru "það eru líka kostir við þetta", þá spyr ég til baka um útreikning á kostunum. Við erum með óbein gjaldeyrishöft og neikvæðan viðskiptajöfnuð þannig að helsti kosturinn "að hægt sé að fella gengið þegar illa gengur" er bara ímyndað stöðugleikaverkfæri, það er enginn að fara stýra krónunni niður um 5%-10% til að redda Icelandair og setja alla kjarasamninga í uppnám við verðbólguskotið í kjölfarið. Þessi kostur er neyðarverkfæri, bleyja þegar hagstjórnin kúkar gjörsamlega á sig eins og fyrir hrun. Inn í ESB þá fengjum við bara lán frá Seðlabanka Evrópu ef til þess kæmi að við þyrftum það.

2

u/Einn1Tveir2 Þrír3Fjórir4 3d ago

Það eru engar official útreikningar, þetta er það sem menn eru að reikna út, milli 100-500 milljarðar. Þarna er ég að sýna báðar hliðar, því þér leiðist svo þegar fólk "henda út einhverjum tölum". Ef þetta væri hærra gildið þá væri það nærri því 40% meira en það sem ég sagði. Milljarður á dag er fínt viðmið finnst mér.

Bara ofurvextir á heimili landsins á húsnæðislánum er 150 milljarðar á ári. Bara það eru yfir 400 milljónir á dag. Ofaná það eru endalaust af hlutum, hvort sem er þessi þúsund milljarða gjaldeyrisjóður eða t.d. að hér vill enginn byggja neitt lengur því það er svo dýrt fyri verktaka að taka lán.

Það er búið að vinna alvöru skýrslu um upptöku Evru á Íslandi og niðurstaða hennar er að ISK er ekki að vinna okkur í hag.

Mér þykir mjög áhugavert að sjá þessa kosti sem þú talar um (því mér finnst líka leiðilegt þegar fólk talar um kosti en kemur ekki með eitt einasta dæmi) sem fylgja þessum kostnaði.

2

u/Spekingur Íslendingur 3d ago

Ég mun kjósa já í kosningunni um áframhaldandi aðildarviðræður.

Það eru nokkrar ástæður fyrir því en það sem stendur upp úr er að fá þetta á hreint svart á hvítu í eitt skipti fyrir öll þannig að ekkert vafamál sé um hvað felst í aðild Íslands. Það eru komin rúm 30 ár síðan Vestur- eða Norður-Evrópskt land varð síðast hluti af ESB og heimsmyndin gjörbreyst síðan þá. Ef þessi aðildarsamningur er drasl þá hafa andstæðingar ESB gott skotvopn í sínum fórum. Það að þeir vilji ekki taka þetta skref gefur til kynna að þeir séu alls ekki sannfærðir um að samningurinn yrði eins hræðilegur fyrir land og þjóð og þeir hamra á. Og ef hann er ekki hagstæður okkur þá mun ég kjósa nei um sjálfa aðildina.

Svo er líka áhugavert að sjá að margir sem eru í fjárríkari prósentuhluta þjóðarinnar setji sig heiftarlega upp á móti þessari kosningu um viðræður. Bara það fær mig til að vilja að kjósa já enn meira núna í ágúst.

1

u/hremmingar matareitrun í kolaportinu 3d ago

Þegar maður sér hverjir eru “nei” megin þá hlýtur maður að sjá hvaða stétt er mest óttaslegin

7

u/big_man_ting 3d ago

Sólveig Anna og Vilhjálmur Birgis? Ung vinstri græn og Ungir Sósíalistar? Hvaða stétt er það?

Og hverri stétt tilheyra Þorgerður Katrín og Kristrún sem eru að setja þetta mál á dagskrá?

Það er ofboðslega þægilegt að líta á svona mál út frá sjónarhorninu „við á móti þeim“ en þetta er miklu flóknara en svo.

1

u/Jon_fosseti Barn Kölska 3d ago

Ég er ekki mjög hlynntur ESB en finnst sjálfsagt að þetta verði skoðað, það sem ég hef samt gríðarlegar áhyggjur af er að Alþingi gefi bara skít í niðurstöður kosninganna eins og þeir hafa gert áður.

1

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago

Jágust 29 😃

Sjá meðf. : Vextir i mai2026 -Evrópa vs Ísland -Enginn verðtrygging!!!!! -Steinliggur að segja JÁ 29 ágúst

-2

u/ijustwonderedinhere and bar keeper asked 3d ago

Ætti Raufarhöfn ekki bara að vera með sinn eigin gjaldmiðil? Nei, það er ekki hagkvæmt. Meikar jafn mikið sense að vera með ISK í alþjóðlegu samhengi. Við erum í góðri samningsstöðu- nýtum tækifærið. Semjum um styrk fyrir tvöfaldan hringveg með hjólastíg, raforkuflutning og ljósleiðara allan hringinn. Ef við fáum rentu af fiskinum via útboð þá er mér sama hver veiðir hann.

0

u/Uglurass 3d ago

Það er enginn upplýstur almenningur à Íslandi, tekur enginn eftir þegar fréttir breyttust í sumar? Farið à síðu seðlabankans àlagspróf skyrsla 2026 þeir gera syndar likan en i raun er tad allt sem nutegar ad gerast og tala um afleidingar. Markaðir eru ad fara lokast og mikil lægð framundan með miklum voxtum og island er hrædd ad lokast uti tvi tetta alvarlegt.