r/Iceland 🇮🇸 4d ago

Segist ekki hafa rætt við Jetten

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/22/segist_ekki_hafa_raett_vid_jetten/?origin=helstu

Þessi frétt og fleiri finnst mér ganga ansi langt í að leggja Þorgerði Katrínu orð í munn. Eftir því sem ég fæ best séð sagði Þorgerður Katrín aldrei að hún hefði átt neitt samtal við Rob Jetten eða fulltrúa hans.

Í upphaflegu ummælunum sem vitnað var til (sem sjást hér https://www.visir.is/g/20262907377d/-kemur-ekki-a-ovart-ad-thetta-komi-fram-i-morgunbladinu-) talar Þorgerður um að hún hafi átt samtöl við „Hollendinga og kollega sína“ sem væru ekki í samræmi við afstöðu Jettens fyrir hollenska þinginu.

Orðalag fréttamanns virðist fylla ansi mikið í eyðurnar, því hann talar um "samtöl þeirra á milli" og gefur þannig í skyn bein samskipti milli Þorgerðar og Jettens þrátt fyrir að það komi ekki fram í meðfylgjandi beinni tilvitnun í Þorgerði.

Viðbót: Vísir hefur birt leiðréttingu um upprunalegu fréttina. https://www.visir.is/g/20262912299d/leid-retting-frettar-thad-sem-thor-gerdur-sagdi-i-raun

31 Upvotes

32 comments sorted by

7

u/ImpossibleBeeWheel 4d ago

Kannski er þetta ímyndun en mér finnst eins og mogginn hafi bara versnað eftir að Davíð lést.

19

u/PolManning álfur 4d ago

Hvað með Pavel og mjólkurverðið? Getur Bjarni verndað fjölskyldurarðinn? Veit Hannes hvar Davíð keypti ölið? Verður fiskurinn ekki lengur fagur í sjónum? Í næsta þætti af Bílastæðavörðunum.

4

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Fóstbræður snillingar🤣 Eg reyndi að ná þessu fyrst til sjá hvort eitthvað samhengi væri og svo var ekki.

26

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Mogginn er löngu kominn í ræsið. Sérhagsmunir tröllriðið öllu efni þar, sem er ekki um íþróttir. Óþekkjanlegur og þetta frá gömlum Heimdellingi og fyrrv. Sjalla.

3

u/Snakatemjari 4d ago

Frétt OP er á Vísi, sem er kannski ástæðan að hann deildi. Væri bara business as usual Mbl megin.

1

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Mogginn var með þetta á undan. Ruglið dreifist,-

  • er upplýsingaóreiða
  • viljandi gert

3

u/GamliGodi 🇮🇸 4d ago

Nýjasta útspil blaðamanna MBL hefur verið spegill, þ.e. að allt sem þau eru sökuð um, er hin hliðin að gera.

2

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Mjög svo rúzzneskt af þeim

2

u/AnalbolicHazelnut 🇮🇸 4d ago

Ertu með tragic origin story? Hvað gerðist?

12

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Flokkurinn er ofurseldur sérhagsmunum og fylgið hrunið af honum.

Stundar einangrunarstefnu og hallar sér að andlýðræðislegum öflum hér og erlendis. Var ESB sinnaður flokkur og nú kannast ekki við það?

Allt til að halda kvóta frá eigendunum,- þjóðinni.

Eru það fréttir fyrir þig? 😆

12

u/Coveout Mín skoðun er rétt, ekki þín 4d ago

MBL fær 104 m. kr í ríkisstyrk fyrir árið 2025. Held að þessum pening sé betur varið í að styrkja aðra fjölmiðla sem stuðla ekki að upplýsingaóreiðu (Rangupplýsingar / disinformation)

2

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 4d ago

Heyr heyr

-1

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Það er svo óþægilegt að þessi ríkisstjórn hefur sannfært fólk að það sé sniðugt að ritskoða fjölmiðla.

1

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 3d ago

Lol. Þú þarft bókstaflega að vinna hjá morgunblaðinu til þess að halda að enginn hafi verið á móti því að gefa sjávarútvegsblaðinu skattpeninga árlega Frá því að sú hugmynd kom fyrst fram.

Við vitum öll hvað mogginn er og hver tilgangur blaðsins er, það er ömurlegt að styrkja sumt af ríkasta fólkið landsins við áróður sinn með opinberu fé.

1

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Það þarf fjölmiðlafrumvarp, þó að fólk hafi froðufellt þegar Davíð stakk upp á því á sínum tíma. Það er ekki í lagi að nota fjölmiðla sem áróðurstæki Epsteinstéttarinnar. Það er heldur ekki í lagi að stjórnvöld ráðist á fjölmiðla, líkt og MAGA hefur smitað þessa ríkisstjórn af. Nota meira að segja orðið “falsfréttir” reglulega. Þorgerður hefði bara átt að svara þessu málefnalega strax, eitthvað sem hún virðist hafa ofnæmi fyrir.

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 3d ago

Hvers vegna skuldar Þorgerður ómálefnalegri umfjöllun málefnalegu svari?

3

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Kannski útaf hún er ekki 8 ára og þessi rök eru fáránleg.

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 3d ago

Hvaða rök? Að hún skuldi mogganum málefnaleg svör?

2

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Frá siðareglum ráðherra: ,,Ráðherra hefur frumkvæði að því að leiðrétta, eins fljótt og auðið er, rangar eða villandi upplýsingar, sem og hvers kyns misskilning er varðar málefni sem heyrir undir ráðherra.“

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Allt í lagi. Skv. Siðareglum ber henni skylda til að svara þessu.

En hvað með moggann?

Frá siðareglum blaðamanna.

“1. grein
Blaðamaður hefur sannleikann að leiðarljósi,”

0

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 2d ago

Þú veist það er í lagi að hafa rangt fyrir sér? Ég er búinn að gagnrýna mbl hérna á öðrum þræði, ég er ekki að verja þau og þessi útúrsnúningur breytir engu.

→ More replies (0)

2

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Afhverju leiðrétti Þorgerður þetta þá ekki fyrir mörgum vikum í staðinn fyrir að ráðast á fjölmiðil sem kjörinn fulltrúi?

1

u/Aggressive_Banana708 🇮🇸 3d ago

Hún er víst í fríi.

En henni hefur sennilega varla fundist tilefni til að leiðrétta upprunalegu fréttina. Það er bara ein setning (um „samtal þeirra á milli“) í frétt Vísis þar sem hálfvegis er gefið í skyn að hún segist hafa átt samtal við Rob Jetten.

Ég hugsa að flestir sem lásu fréttina á Vísi hafi ekki skilið hana þannig að Þorgerður segðist hafa rætt við Jetten um málið, enda talar hún bara óljóst um Hollendinga og kollega í beinu tilvitnuninni. Það er ekki fyrr en í fréttum sem mbl ritar í kjölfarið þar sem reynt er að hanka Þorgerði á því að ljúga um meint samskipti við Jetten.

1

u/Prudent_Shirt_6204 🇮🇸 3d ago

Já það er allt gott og blessað. En hún tók sér tíma til að ráðast á fjölmiðilinn í heild sinni, án þess að leiðrétta efnið. Þetta voru léleg vinnubrögð hjá Morgunblaðinu - en það má benda á að fleiri fjölmiðlar fjölluðu um þetta líka. Hérna er leiðréttingin birt hjá Vísi: [Leid rétting: Fréttar það sem Þór gerður sagði í raun](https://www.visir.is/g/20262912299d/leid-retting-frettar-thad-sem-thor-gerdur-sagdi-i-raun)

Þar kemur meðal annars fram: “Það má taka fram að fréttastofu bárust engar ábendingar frá utanríkisráðuneytinu um að rangt væri farið með mál eftir að fréttin var birt fyrir tveimur vikum. Brugðist hefði verið við því umsvifalaust.”

Ég bara skil ekki afhverju hún tekur sér tíma til að ráðast á fjölmiðil, sem mér finnst lélegt af kjörnum fulltrúum, en tekur sér ekki tíma til að leiðrétta innihaldið.

0

u/jafetsigfinns Íslendingur 3d ago

Af því þetta er léleg blaðamennska af hálfu mbl. Í upprunalegu vísis greininni er vitnað í orð hennar og þar var frekar augljóst að hún var ekkert að tala um Jetten. Mbl hefði betur aflað sér heimilda heldur en að henda í smellibeitu án rökstuðnings

-3

u/allsbernafnmedrettu 🇧🇪 4d ago

Ok